Fyrsta sendingin af ferskum íslenskum laxi til að fara inn í Kína í gegnum alþjóðaflugvöllinn í Hangzhou Xiaoshan kom þangað 2. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá tollinum á flugvellinum í Hangzhou Xiaoshan sem vitnað er til í fréttamiðlinum salmonbusiness.com var gefið grænt ljós á sendinguna frá Íslandi samkvæmt verklagi fyrir kælivörur. Tollyfirvöld segðu að íslenski laxinn væri nú viðbót inn á svæðið í kringum Yangtze-fljótið á sama hátt og lax frá löndum eins og Síle og Noregi. Flýtimeðferð í pappírslausri tollafgreiðslu Þá segir að sendingin hafi verið meðhöndluð eftir svokallaðri „grænleið“ fyrir viðkvæmar vörur þar sem upplýsingar um sendinguna hafi verið fyrir fram tilbúnar, beitt hafi verið pappírslausri tollafgreiðslu undir þjónustu sem opin sé allan sólarhringinn til að minnka þann tíma sem geyma þurfi ferskan fisk á flugvellinum. Eftirspurn eftir innfluttum laxi ört vaxandi í Kína Bendir Salmonbusiness á að þessi nýja flugleið komi á sama tíma og eftirspurn eftir innfluttum laxi sé ört vaxandi í Kína. Flutt hafi verið inn metmagn af laxi frá Noregi í júlí, alls 12.464 tonn, sem sé aukning um 27 prósent frá sama mánuði í fyrra. Verðmætið hafi hins vegar aukist um 37 prósent og verið 87 milljón evrur, sem er jafnvirði um 12,4 milljarða íslenskra króna. Fyrir lax frá Noregi hafi kínverski markaðurinn verið sá sem sé í örustum vexti. Íslenskur lax njóti vinsælda „Íslenskur lax nýtur mikilla vinsælda á efri hluta markaðarins vegna þétts holds og mikils fituinnihalds, en jafnframt eru gerðar afar strangar kröfur um hraða tollafgreiðslu og hitastýringu,“ hefur kínverski fréttamiðilinn sohu.com eftir aðila í vöruflutningageiranum. Aukið svigrúm fyrir hágæða sjávarafurðir inn á Kína Hnökralausa tollafgreiðslu fyrstu sendingarinnar af íslenskum laxi megi rekja til ýmissa aðgerða sem einfaldi tollafgreiðslu og þjónustu sem tryggi greiðan flutning allan sólarhringinn. „Þetta veitir okkur aukið svigrúm til að flytja fleiri hágæða sjávarafurðir inn á kínverska markaðinn.“ Magnið á Hangzhou-flugvelli nær fjórfaldast síðan í fyrra Þá kemur fram að á fyrri helmingi þess árs hafi tollyfirvöld á Hangzhou-flugvelli haft eftirlit með 1.625 sendingum af innfluttum ferskum sjávarafurðum, sem samtals voru 7.738,68 tonn. Magnið hafi nær fjórfaldast síðan í fyrra.