Innlent | Morgunblaðið | 21.8.2026 | 9:15 Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Álitsgerðin er 126 síður og staðfestir hún fyrri rannsóknir. mbl.is/Samsett mynd Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB ÖSE hefur auga með þjóðaratkvæðagreiðslunni Vill ekki lengur ganga í ESB Beint: Áfram Ísland fundar í Kópavogi og á Akureyri Írar treysta illa samningum við ESB Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu » Fleiri tengdar fréttir Ísland myndi missa ákvörðunarvald um verndun fiskistofna og árlegan hámarksafla við aðild að Evrópusambandinu (ESB). Aðeins úthlutun aflaheimilda milli íslenskra skipa yrði áfram á forræði íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í álitsgerð Gunnars Þórs Péturssonar, Hafsteins Dan Kristjánssonar og Margrétar Einarsdóttur, lagaprófessora við Háskólann í Reykjavík, sem unnin var að beiðni Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Fram kemur fram að Evrópusambandið fari „eitt og óskipt“ með valdheimildir, sem varða verndun lífrænna auðlinda hafsins, og að ákvörðun um heildarafla sé tekin á vettvangi ráðherraráðs sambandsins, ekki af einstökum aðildarríkjum. Bent er á að helsta mögulega vörn Íslands gegn því að tapa hlutdeild í eigin fiskistofnum, hin svonefnda regla um hlutfallslegan stöðugleika, hvíli ekki á sáttmálum ESB heldur í reglugerð sem sambandið geti breytt einhliða með auknum meirihluta. Frétt af mbl.is Sjávarafurðir 40% af útflutningi Enginn fengið undanþágu Niðurstaða prófessoranna er í meginatriðum samhljóða umsögn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) um málið frá því í vor, þar sem sagði m.a. að Ísland „gæti því ekki komið í veg fyrir að reglunni yrði breytt eftir inngöngu í sambandið“, en þar m.a. stuðst við eldri skrif Stefáns Más Stefánssonar fv. lagaprófessors um EES- og ESB-rétt. Í álitsgerðinni kemur jafnframt fram að ekkert ríki hafi hingað til fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB, þar á meðal ekki Noregur, sem samdi um aðild 1994 en felldi aðildarsamninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá er tekið fram að samningsumboð gagnvart ríkjum utan ESB vegna deilistofna á borð við makríl, kolmunna og norsk-íslenska síld myndi flytjast frá Íslandi til Evrópusambandsins, en Ísland semur nú sjálft við önnur strandríki um þessa stofna. Frétt af mbl.is Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Eignarhald í sjávarútvegi Vikið er í álitsgerðinni að 25% hámarki á erlendu eignarhaldi í íslenskum sjávarútvegi, undanþágu frá EES-samningnum varðandi frjálst flæði fjármagns og staðfesturétt, og sagt óvíst hvort hún héldist óbreytt við aðild að ESB. Þar er talað af meiri varfærni en ástæða er til, því í samningsafstöðu ESB frá aðildarviðræðunum, sem hófust 2010, er sérstaklega hamrað á þvi að undanþágur Íslands samkvæmt EES-samningnum „geta ekki talist fordæmisgefandi í aðildarviðræðunum“. Sú afstaða kom jafnframt fram í umsögnum aðildarríkja um aðildarumsókn Íslands. Það gæti torveldað að núverandi takmarkanir á erlendu eignarhaldi héldust við aðild, þvert á yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar um að full og varanleg yfirráð yfir auðlindum landsins séu ófrávíkjanleg skilyrði aðildar af Íslands hálfu. Frétt af mbl.is Írar treysta illa samningum við ESB Naum fréttatilkynning Í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins um álitsgerðina segir að „eftir sem áður“ væri hægt að byggja íslenskt fiskveiðistjórnunarkerfi á íslenska kvótakerfinu, gerðist Ísland aðili að ESB. Þar vantar hins vegar þann fyrirvara álitsgerðarinnar að sú heimild nái einungis til úthlutunar aflaheimilda innanlands, ekki til heildarafla, sem yrði ákveðinn í Brussel. Beðið var um álitsgerðina í júní, en viðræður um verkið hófust í maí. Höfundar skiluðu drögum 10. ágúst, en prófarkalesin lokaútgáfa var til 13. ágúst. Álitsgerðin var kynnt ríkisstjórn á fundi 18. ágúst og birt almenningi opinberlega degi síðar, rétt rúmri viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB ÖSE hefur auga með þjóðaratkvæðagreiðslunni Vill ekki lengur ganga í ESB Beint: Áfram Ísland fundar í Kópavogi og á Akureyri Írar treysta illa samningum við ESB Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Brasilíumaðurinn kominn til Tottenham Rétti tíminn til að huga að húsinu Flugumferðarstjórar í verkfall Aðsend grein: Burðarásar á brauðfótum Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Burðarásar á brauðfótum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meta möguleika á leit að Lúðvík Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Framkvæmdir að hefjast við Miklubraut og Grensásveg Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Refir gerast ágengir fyrir norðan Meta möguleika á leit að Lúðvík Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Áður óbirtur kafli Thorsaranna lítur dagsins ljós í haust Telja sig fyrsta til að klífa Eyrarkerlingu Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Brasilíumaðurinn kominn til Tottenham Rétti tíminn til að huga að húsinu Flugumferðarstjórar í verkfall Aðsend grein: Burðarásar á brauðfótum Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Burðarásar á brauðfótum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Meta möguleika á leit að Lúðvík 300 manns í útgöngubanni Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Refir gerast ágengir fyrir norðan Meta möguleika á leit að Lúðvík Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Áður óbirtur kafli Thorsaranna lítur dagsins ljós í haust Telja sig fyrsta til að klífa Eyrarkerlingu Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar