Forsendur fjárfestinga í tölvuinnviðum hafa tekið breytingum. Verð og afhendingartími búnaðar eru ófyrirsjáanlegri en áður og fyrirtæki þurfa í auknum mæli að taka ákvarðanir við meiri óvissu. Guðmundur Stefán Björnsson, forstjóri Sensa, segir áhrifin þegar hafa sýnt sig í samskiptum við birgja og viðskiptavini. Verð geti breyst hratt og dæmi séu um að tilboð í tölvubúnað hafi aðeins gilt í einn dag. Lengri afhendingartími geri fyrirtækjum jafnframt erfiðara að bregðast hratt við ef mikilvægur búnaður bilar. Hann segir fyrirtæki bregðast við með ólíkum hætti. Sum hafi flýtt fjárfestingum af ótta við frekari hækkanir á meðan önnur fresti fjárfestingum í von um að óvissan minnki. Hjá Sensa hafi jafnframt aukist eftirspurn eftir þjónustu sem geti veitt fyrirtækjum meiri fyrirsjáanleika í kostnaði og rekstri. „Það má segja að við séum í miðjum stormi gervigreindarkapphlaupsins og ekki að sjá að storminn lægi á næstunni,“ segir Guðmundur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .