Hans Petter Espelied, sérfræðingur hjá HP, hélt nýlega erindi hér á landi þar sem hann fór yfir áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn. Hann lýsir hraðri þróun og segir að mörg fyrirtæki velti því nú þegar fyrir sér hvernig vinnustaðir og störf muni líta út eftir áratug eða tvo. Hann bætir við að greiningarvinna sem áður þurfti heilu teymin sé nú framkvæmd af einum starfsmanni með réttan búnað. „Gervigreindin er ekki lengur framtíðartækni. Hún er hér, hún er komin inn í tölvuna á skrifborðinu þínu og hún er þegar farin að breyta því hvernig fólk vinnur. Skýrslugerð sem áður tók daga er gerð á klukkutímum. Hönnunarvinna sem áður krafðist sérhæfðra forrita og margra ára þjálfunar er orðin aðgengileg fleirum,“ segir Hans. Sjá einnig Tími breytinga á lögfræðiþjónustumarkaði Hans segir að störfin á vinnumarkaðnum muni breytast meira á næstu 15 árum en þau hafa gert á síðustu 50. „Þetta er ekki hægfara þróun eins og við höfum séð áður heldur kerfisbundin breyting á því hvernig fólk vinnur, hvernig fyrirtæki keppa og hvaða færni verður eftirsóttust.“ Gervigreindin verður samstarfsmaður Hans Petter segir að gervigreindin verði samstarfsmaður í náinni framtíð frekar en bara verkfæri. „Sérfræðingar geta unnið með gervigreind á sviðum þar sem þeir hefðu áður þurft margra ára nám.“ „Sérfræðingar, hvort sem það eru lögfræðingar, verkfræðingar, hönnuðir eða markaðsfólk, munu vinna í pörum með sínum eigin gervigreindaraðstoðarmanni sem þekkir verkefnin þeirra, gögnin og vinnubrögðin.“ Hann bætir við að endurtekin verkefni muni hverfa að mestu úr daglegri rútínu og að sérhæfing minnki í sumum greinum en gæti þó aukist í öðrum. „Sérfræðingar geta unnið með gervigreind á sviðum þar sem þeir hefðu áður þurft margra ára nám. Á sama tíma verður meiri eftirspurn eftir fólki sem skilur hvernig á að vinna með gervigreind, býr til rétt verklag, spyr réttu spurninganna og leggur faglegt mat á niðurstöðurnar.“