Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þor­gerður sögð hafa fundað með Ás­geiri

Read Full Article →

Það sást til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á hádegisverðarfundi með Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra í húsakynnum Seðlabankans skömmu fyrir vaxtaákvörðunarfund peningastefnunefndar í vikunni. Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, greinir frá þessu í nýjum þætti Þjóðmála. „Það sætir tíðindum að leiðtogar ríkisstjórnarinnar, sérstaklega utanríkisráðherra sem alla jafna hefur ekki mikið um málefni Seðlabankans að gera, sé að hitta seðlabankastjóra nokkrum dögum fyrir vaxtaákvörðunarfund,“ sagði Hörður. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig, upp í 8,0%, á miðvikudaginn. Sumir höfðu gert ráð fyrir að Ásgeir yrði mögulega spurður um atriði tengd mögulegri upptöku evru á kynningarfundi Seðlabankans sem fór fram miðvikudagsmorgunn. Lítið sem ekkert var hins vegar rætt um evruna. Hörður sagðist ekki hafa upplýsingar um hvert fundarefnið var. Hann bætti þó við að fundurinn veki upp spurningar um hvort utanríkisráðherra hafi haft áhyggjur af mögulegum umræðum á kynningarfundi Seðlabankans tengdum þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB á ný. „Þannig að greinilega hefur líklega gætt einhverrar tortryggni af hennar hálfu í garð Seðlabankans.“ Í þessu samhengi benti Hörður á að það hafi stundum andað köldu milli Ásgeirs og Viðreisnar. Þáttastjórnandinn Gísli Freyr Valdórsson tók undir þetta og sagði Ásgeir hafa slátrað kosningabaráttu Viðreisnar fyrir þingkosningarnar árið 2021. Hann rifjaði upp að Guðbrandur Einarsson hafi gangrýnt málflutning seðlabankastjóra harðlega í kosningasjónvarpinu þegar þingkosningarnar fóru fram 25. september 2021. Sjá einnig „Vanhugsað“ að festa krónuna við evruna Viðskiptablaðið hefur sent utanríkisráðuneytinu fyrirspurn um málið. Rætt er um fund Þorgerðar og Ásgeirs frá 45:40-48:20.

Share this article