Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Staða heimsmála rædd í Svörtuloftum

Read Full Article →

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utan­ríkisráðherra fundaði með Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra í húsakynnum Seðlabankans skömmu fyrir vaxtaákvörðunina í síðustu viku. Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, vakti fyrstur athygli á fundinum í hlaðvarpi Þjóðmála. Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðar­maður Þorgerðar, staðfesti við Vísi að utanríkisráðherra hefði „líkt og forverar hennar í starfi“ fundað með seðlabankastjóra „til þess að ræða stöðu heimsmála“. Vaxta­ákvörðun peningastefnunefndar hefði ekki verið rædd á fundinum en Ingileif vildi þó ekki tilgreina nánar hvað var rætt. Hvort tilviljun ein hafi ráðið því að fundurinn fór fram nokkrum dögum fyrir síðustu vaxtaákvörðun fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB skal ósagt látið. Aftur á móti væri áhugavert að spyrja forvera Þorgerðar hvort þeir hafi átt reglulega fundi með seðlabankastjóra um „stöðu heimsmála“. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanapistlum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article