Innlent | mbl | 24.8.2026 | 12:55 | Uppfært 13:26 Andri fékk tæpar 9 milljónir á sinn reikning Reykholtsmálið á rætur að rekja til apríl 2024 þegar hópur fólks réðst að erlendum manni, palestínskum að uppruna og með maltneskt ríkisfang, á heimili hans í Reykholti í Biskupstungum. Samsett mynd mbl.is/Karítas/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Reykholtsmálið: Vitnisburðum lækna frestað „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Vissi að brotaþoli ætti milljónir Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu » Fleiri tengdar fréttir Rannsókn á munum sem lögregla lagði hald á og hvernig tæplega 17,7 milljónum króna af bankareikningi brotaþola var ráðstafað var meðal þess sem kom fram við aðalmeðferð Reykholtsmálsins í Héraðsdómi Suðurlands fyrr í dag. Sex Íslendingar eru ákærðir fyrir að hafa ráðist á palestínskan mann með maltneskt ríkisfang, á sjötugsaldri, í sérstaklega hættulegri og stórfelldri líkamsárás í Reykholti á Suðurlandi í apríl 2024. Voru tæplega 18 milljónir króna millifærðar af bankareikningi hans. Frétt af mbl.is Reykholtsmálið: Vitnisburðum lækna frestað Blóð á límbandi úr brotaþola Snemma í morgun mætti fyrir dóm lögreglumaður sem kom að rannsókn málsins og greindi frá DNA-rannsókn á meðal annars hnúajárni og límbandi. Að sögn lögreglumannsins fannst mikið DNA á hnúajárninu en var sýnið svo flókin blanda að ekki var unnt að greina hvaða einstaklingum það tilheyrði. Sýni voru borin saman við DNA frá Sigurði Gunnari Ásgeirssyni, Andra Má Mortensen Birgissyni og Ingunni Rut Sigurðardóttur, en ekki tókst að samkenna DNA þeirra við hnúajárnið. Þá fannst á límbandi blóð sem samkennt var við brotaþola. Einnig fundust hár á límbandinu en DNA-rannsókn á þeim gaf ekki niðurstöðu. Frétt af mbl.is Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? 17,6 milljónir Lögreglumaður sem vann að fjármálagreiningu málsins rakti jafnframt hvernig þeim 17,66 milljónum króna sem færðar voru af bankareikningi brotaþola var ráðstafað. Samkvæmt greiningunni fengu Andri Már um 8,5 milljónir, Pétur Már Mortensen Birgisson um 3,7 milljónir, en um 3,5 milljónir runnu inn á reikning Ingunnar. Sigurður fékk tæpar tvær milljónir. Þá kom fram að Sigurður hefði síðar millifært 600 þúsund krónur til Andra og 100 þúsund krónur til Ingunnar. Frétt af mbl.is „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Átti erfitt með að tala Maltneskur lögreglumaður, sem sinnti máli brotaþola eftir að hann kom til Möltu, gaf einnig skýrslu. Hann sagði brotaþola hafa komið á sjúkrahús aðfaranótt 24. apríl 2024 eftir að hafa orðið fyrir árás á Íslandi, samkvæmt samtölum sínum við brotaþola. Þá hefði brotaþoli átt erfitt með að tala en náð að segja lögreglumanninum frá því að leigusali hans, dóttir leigusala hans og tengdasonur hefðu haldið honum föngnum í þrjá daga. Með virk áfallaeinkenni Sálfræðingur sem hitti brotaþola þrisvar sinnum lýsti jafnframt mjög erfiðri líðan hans eftir atvikið. Hann hafi verið stöðugt hræddur, átt erfitt með svefn og næringu og átt erfitt með að treysta fólki. Hann hafi einnig verið ringlaður og haft miklar áhyggjur af lífi sínu. Sálfræðingurinn sagði brotaþola hafa verið með virk áfallaeinkenni. Ekki hefði verið hægt að greina áfallastreituröskun svo skömmu eftir atburðina en mjög líklegt væri að reynslan hefði áhrif á hann til frambúðar. Kjálkabrotinn með brotnar tennur Þá kom einnig fyrir dóm í morgun tannlæknir sem skoðaði brotaþola 10. maí 2024 og lýsti einnig áverkum á tönnum hans. Við skoðunina kom í ljós að brotaþoli var með kjálkabrot og bólgu, var með brotnar tennur og hafði misst tennur. Af myndum hefði mátt ráða að tanntapið hefði verið nýlegt, líklega innan nokkurra vikna frá skoðuninni. Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Reykholtsmálið: Vitnisburðum lækna frestað „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Vissi að brotaþoli ætti milljónir Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Jón Þór lætur Stjörnuna heyra það Aukaþáttur: Hilmar Veigar í Spursmálum Blæs á hótanir Rússa Íslendingur stýrði Frökkum til sigurs á HM Around 50 earthquakes in swarm off Reykjanestá Umræðan Heimastjórn Ætlar ríkisstjórnin að láta tækifæri morgundagsins renna hjá? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tugþúsundir á flótta vegna gróðurelda við Reno „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Kallar eftir endurskoðun veggjalda Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Kallar eftir endurskoðun veggjalda Vilja aðgerðir vegna vatnsleka í göngunum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Um 50 skjálftar í hrinu á Reykjanestá Mígrenissjúklingar öðlast málsvara Össur reyni að endurreisa sinn sögulega feril Steinn Ármann Magnússon er látinn „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum Nærri 23 gráða hiti Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Jón Þór lætur Stjörnuna heyra það Aukaþáttur: Hilmar Veigar í Spursmálum Blæs á hótanir Rússa Íslendingur stýrði Frökkum til sigurs á HM Around 50 earthquakes in swarm off Reykjanestá Umræðan Heimastjórn Ætlar ríkisstjórnin að láta tækifæri morgundagsins renna hjá? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldur kviknaði í bíl í Vesturbænum Súrrealísk en góð upplifun „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Kallar eftir endurskoðun veggjalda Vilja aðgerðir vegna vatnsleka í göngunum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Um 50 skjálftar í hrinu á Reykjanestá Mígrenissjúklingar öðlast málsvara Össur reyni að endurreisa sinn sögulega feril Steinn Ármann Magnússon er látinn „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Kaupa bíl fyrir skólabörn við rýmingu Skella skollaeyrum við athugasemdum landlæknis og lögreglu Ölvuð börn í miðbænum: Tveimur skemmtistöðum lokað Halla forseti búin í tánum Nærri 23 gráða hiti Segir „Já til að sjá“ sniðuga auglýsingabrellu Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“