Innlent | Sunnudagsblað | 22.8.2026 | 7:00 Pistill: Þess vegna NEI Ögmundur Jónasson segir stjórnarflokkana vera að bregðast kjósendum sínum. Ljósmynd/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Pistill Ögmundar Jónassonar úr Sunnudagsblaðinu Ég hef hlustað eftir sjónarmiðum úr já-áttinni: Íslandi verði best borgið innan Evrópusambandsins með sameiginlegan gjaldmiðil og fyrir bragðið meiri efnahagslegan stöðugleika og hagsæld en nú gefst. Matarverð yrði lægra, svo og vextir. Vinnumarkaðurinn yrði „agaðri“ samkvæmt fyrirmælum seðlabanka Evrópusambandsins í Frankfurt. Við yrðum jafnrétthá öðrum ríkjum ESB og gætum nú haft áhrif á gang mála. Og svo yrði öryggi Íslands betur tryggt en ella. Litla ríkið verði að vera í skjóli, nú einnig fyrir Trump. Síðan er það Já-til-að-sjá hvað gæti komið út úr samningaviðræðum, hve miklu af þeim fullveldisrétti, sem við þó héldum eftir samkvæmt EES samningnum, við fengjum leyfi til að hafa áfram á hendi til frambúðar. Samningaviðræður þurfi til að sjá hve miklu við þyrftum að fórna. Þessu er því til að svara að engar undanþágur eru varanlegar, framsalið á valdheimildum er hins vegar varanlegt. Evrópumarkaðurinn stendur okkur opinn samkvæmt EES, tryggir frelsi til atvinnu og búsetu og fjármagnið fær að flæða. Þar er gagnkvæmur réttur að undanskildum íslenskum sjávarútvegi. Markaðsvæðingarkrafa EES er reyndar of frek og ágeng og óar mig við því að gengið yrði enn lengra út á þann planka. Frelsi til fjárfestinga í auðlindum og innviðum á að mínu mati að vera á innlendu forræði en ekki lúta erlendu boðvaldi. Vinnumarkaðurinn á að hafa frelsi til að hrista af sér misrétti með verkalýðsbaráttu og mér þykir furðulegt að heyra menn biðja um „agavald“ frá Brussel gagnvart íslensku launafólki. Fráleit þykir mér sú hugsun að vilja leita eftir öryggi hjá gömlum nýlenduríkjum sem langar til að verða stórveldi á ný. Þar er hvorki réttlæti né öryggi að finna nema síður sé. „Nú þarf að koma evrópskum hagkerfum í stríðsham“ sagði forseti leiðtogaráðs ESB í mars 2024 og einmitt það er verið að gera. Opinskátt er talað um að vígvæðing Evrópu verði óhjákvæmilega á kostnað velferðar. Íslendingar teljast vel að merkja aflögufærir og fengju því að blæða! En hvað yrði þá um stöðugleikann, hagsældina, vextina – og mannréttindin? Þau eru nú á undanhaldi í Evrópusambandinu eins og gerist hjá þjóðum í stríðsham. Áhrif Íslands í ESB yrðu nánast engin og alls engin borið saman við það sem við höfum nú í alþjóðasamfélaginu, enda snúa þau áhrif sem við helst þurfum á að halda að skipulagi okkar eigin samfélags. Og út á við á Ísland að vera friðflytjandi. Það er skortur á þeim í heiminum. Þess vegna segi ég nei við ESB. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lögreglan rannsakar líkamsárás í Reykjavík Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Embætti forstjórans verður ekki auglýst Pistill: Þess vegna NEI Aðsend grein: Þorgerður Katrín segir ekki satt í viðtölum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Vissi að brotaþoli ætti milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Skúli Mogensen: Ég segi nei! Gera allt til að finna farangur Ásgeirs 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi „Gríðarleg skattalækkun“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Smáskjálfti fannst vel á Selfossi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » Lögreglan rannsakar líkamsárás í Reykjavík Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Embætti forstjórans verður ekki auglýst Pistill: Þess vegna NEI Aðsend grein: Þorgerður Katrín segir ekki satt í viðtölum Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Glóandi gull í bekk á HM Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir „Gríðarleg skattalækkun“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Skúli Mogensen: Ég segi nei! Gera allt til að finna farangur Ásgeirs 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi „Gríðarleg skattalækkun“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Smáskjálfti fannst vel á Selfossi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur