Innlent | Morgunblaðið | 5.9.2026 | 7:00 Niðurstöður afbakaðar Ögmundur Jónasson Ljósmynd/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Úr ólíkum áttum Pistill Ögmundar Jónassonar úr Sunnudagsblaðinu Það var skynsamleg ákvörðun fyrr á árinu að leggja tillögu um bókun 35 með EES-samningnum til hliðar. Ef niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefði leitt til aðildarviðræðna við ESB og í kjölfarið aðildar hefði bókunin þar með verið úr sögunni því við hefðum þá undirgengist úrskurðarvald Evrópusambandsins að öllu leyti. En niðurstaðan varð ekki þessi. Meirihlutinn hafnaði því að ganga lengra inn undir stjórnkerfi ESB og þar með dómsvald. Þá bregður svo við að valkyrjurnar þrjár, eins þær stundum kalla sig, boða blaðamannafund og segja að þjóðin hafi í reynd verið að biðja um nánara samstarf við Evrópusambandið á forsendum samningsins um hið Evrópska efnahagssvæði og þær ætli að byrja á því að bregðast við þessu ákalli með lögleiðingu bókunar 35! Spurningin sem þjóðin svaraði var þessi: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Hvergi var minnst á EES, hvað þá hernaðarsamvinnu sem utanríkisráðherra sagði augljóst að þjóðin hefði viljað efla til muna! Vissulega kom það viðhorf skýrt fram í umræðunni að við hefðum það sem við þyrftum með EES-samningnum, aðgang að markaðssvæði Evrópu og samstarf á ýmsum sviðum. Jafnframt kom þó fram að ýmsir töldu EES-samninginn hafa þrengt að lýðræðinu og að með honum hefði gróðakrumlunni verið hleypt of nærri innviðum samfélagsins. Í helgarpistli á þessum stað í þessu blaði sagði ég 31. maí síðastliðinn, svo dæmi sé tekið: „Með EES-samningnum var gerð málamiðlun sem gekk of langt í fullveldisafsali að mínu mati. Nú þegar heimtað er að gengið verði enn þá lengra í þessa átt segi ég nei og vonast til þess að flestir geri slíkt hið sama.“ Umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafði ýmsa kosti í för með sér. Eftir því sem á leið var farið að kafa eftir skilningi á stjórnkerfi Evrópusambandsins og komu margir þá auga á að dómstól Evrópusambandsins í Lúxemborg er beinlínis gert að stuðla að meiri samruna innan sambandsins með úrskurðum sínum – sem oftar en ekki eru í þágu markaðsafla – og þvinga öll aðildarríkin undir sameiginlegan lagaskilning ESB. Stjórnartillagan um bókun 35 myndi færa okkur enn lengra undir þetta verklag en við þó þurfum að sæta því að með lögleiðingu hennar tekur hún af íslenskum dómstólum svigrúm sem þeir þó hafa til þess að hafa áhrif á landamæri dómsvalds ESB og Íslands þar sem markalínur eru óskýrar. Vorum við að biðja um að þrengt yrði að þessu svigrúmi eða það að engu gert? Hver svari fyrir sig. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tveir handteknir vegna líkamsárásar Treysta ekki kærasta Aniston Kos segir 47% styðja aðild Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Var þetta vopnahlé?" Breyta veglínu Norðurljósavegar Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Rafmagn komið aftur á Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Allt svart í Keiluhöllinni Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Tveir handteknir vegna líkamsárásar Treysta ekki kærasta Aniston Kos segir 47% styðja aðild Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Breyta veglínu Norðurljósavegar Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Rafmagn komið aftur á Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Allt svart í Keiluhöllinni Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn