Innlent | mbl | 22.8.2026 | 13:29 Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörgu barst tilkynningin Neyðarlínu upp úr klukkan hálf sex síðdegis. Ljósmynd/Landsbjörg Setja bókamerki Um 60 björgunarmenn tóku þátt í umfangsmikilli björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi í gær eftir að sönghópur sem var á leið yfir hálsinn óskaði eftir aðstoð vegna skyndilegra veikinda eins úr hópnum. Að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörgu barst tilkynningin Neyðarlínu upp úr klukkan hálf sex síðdegis. Björgunarsveitir kallaðar út á mesta forgangi Vegna staðsetningar hópsins og eðlis veikindanna hafi björgunarsveitum á Suðurlandi, auk fjallabjörgunarmanna úr Vestmannaeyjum, verið gert að halda á vettvang í hæsta forgangi. Þá var þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar aukinheldur kölluð út. Hins vegar var talsverð þoka á Fimmvörðuhálsi, lágskýjað og lítið skyggni, og varð fljótlega ljóst að þyrlan gæti ekki komist að sjúklingnum, en henni var þá lent á flugvellinum á Skógum og beið þar átekta ef flytja þyrfti sjúklinginn með hraði. Vegna staðsetningar hópsins og eðlis veikindanna hafi björgunarsveitum á Suðurlandi, auk fjallabjörgunarmanna úr Vestmannaeyjum, verið gert að halda á vettvang í hæsta forgangi. Ljósmynd/Landsbjörg Í brattri brekku, í rúmlega 1.000 metra hæð Fyrstu björgunarhópar komu á vettvang um klukkan 19, að því er segir í tilkynningunni. Þá var líðan hins veika nokkuð stöðug og hófu sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands að hlúa að honum. Í tilkynningunni kemur fram að sjúklingurinn hafi verið í brattri brekku skammt austan við Fimmvörðuskála, í rúmlega 1.000 metra hæð. Björgunarmenn hafi því komið fyrir tryggingum og línum og flutt hann niður brekkuna, þar sem snjór, ís og brattlendi torvelduðu aðkomu. Um klukkustund síðar hafði tekist að koma honum niður í björgunarsveitarbíl sem flutti hann að sjúkrabíl. Ástand hans var þá metið þannig að ekki væri þörf á sjúkraflutningi með þyrlu. Að mestu lokið um klukkan 22 Auk sjúklingsins voru nokkrir samferðamenn hans og aðstandendur fluttir niður af hálsinum. Einnig var aðstoðaður ferðamaður sem hafði orðið eftir í Baldvinsskála vegna bakverkja og treysti sér ekki til að halda áfram för. Aðgerðinni var að mestu lokið um klukkan 22 í gærkvöldi. Aðgerðinni var að mestu lokið um klukkan 22 í gærkvöldi. Ljósmynd/Landsbjörg Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Menningarnótt sett af stað Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Hræðileg byrjun hjá United Chelsea hafnar tilboði frá Ítalíu Upplýsingaleynd um viðræðuslit við ESB Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skúli Mogensen: Ég segi nei! Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skúli Mogensen: Ég segi nei! Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » Myndir: Menningarnótt sett af stað Umfangsmikil björgunaraðgerð á Fimmvörðuhálsi Hræðileg byrjun hjá United Chelsea hafnar tilboði frá Ítalíu Upplýsingaleynd um viðræðuslit við ESB Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Embætti forstjórans ekki auglýst Bensínskatturinn til skoðunar Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Skúli Mogensen: Ég segi nei! Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur