Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ráða fólki frá því að ganga Fimmvörðuháls

Read Full Article →

Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Þau ráða fólki eindregið frá göngu yfir hálsinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís. Einnig hafa komið í ljós snjóbrýr þar sem snjó vetrarins hefur tekið upp. Undir þeim renna jökulár. Í tilkynningu félaganna segir að mjög hættulegt geti verið að fara yfir jökulbrýrnar eða nálgast þær. Fréttin var uppfærð eftir að félögin breyttu ráðleggingu sinni.

Share this article