Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stórsókn í jarðarberjum

  • What: Agricultural expansion in Iceland
  • Impact: Local farming industry
Read Full Article →

Eigendur Friðheima vinna nú að því að stækka Jarðarberjaland í Reykholti í Biskupstungum en Friðheimar keyptu Jarðarberjaland í desember 2024 af Hólmfríði Geirsdóttur og Steinari Jenseni. Eftir stækkunina mun framleiðslugeta Jarðarberjalands fara úr 60 tonnum á ári í 100 tonn og verður ræktunarsvæðið sömuleiðis stækkað úr 3.600 fermetrum í 6.000 fermetra. Hólmfríður og Steinar tóku við Jarðarberjalandi árið 2017 frá hollenskum rekstraraðilum. Svæðið varð síðan fyrir miklu tjóni í óveðri í febrúar 2022 sem varð til þess að húsið hrundi. Í stað þess að leggja árar í bát ákváðu þau að byggja upp nýja aðstöðu frá grunni. Knútur segir að frá því að félagið tók við rekstri Jarðarberjalands hafi Friðheimar unnið hörðum höndum að því að innleiða ræktunina inn í fyrirtækið. „Það er rosalega mikil eftirspurn eftir íslenskum jarðarberjum og við sjáum nú tækifæri til að koma inn á markað með mun meira magn. Jarðarberjaræktun á Íslandi er líka sérstök þar sem við þurfum ekki að úða neinum eitur- eða varnarefnum á berin.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article