Steinn Ármann Magnússon, leikari, lést á heimili sínu í Hafnarfirði á föstudag. Hann var á 62. aldursári. Hann vakti fyrst athygli á tíunda áratugnum sem annar helmingur Radíusbræðra, sem segja má að hafi rutt íslensku uppistandi braut á sínum tíma, og naut mikilla vinsælda sem leikari og grínisti. Steinn lætur eftir sig eiginkonu og tvo syni. Var margt til lista lagt Steinn lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989. Hann lék jafnframt á bassa með hljómsveitinni Kátum piltum frá Hafnarfirði. Steinn starfaði sem dagskrárgerðarmaður, fyrst á Aðalstöðinni og síðan á Bylgjunni þar sem hann var einn stjórnenda hinna vinsælu útvarpsþátta Radíus, Górillan og King Kong. Steinn lék í fjölda sjónvarpsþátta, leikrita og kvikmynda, á borð við Limbó, Radíus, Veggfóðri, Áfram Latibær, Astrópíu, Stellu í framboði, Hross í oss, Vodkakúrnum og Ófærð svo eitthvað sé nefnt. Hann lék einnig köttinn Kela í Stundinni okkar um árabil sem vann hug og hjörtu yngstu kynslóðarinnar auk annarra smærri hlutverka í ýmsu barnaefni. Hann var annar höfunda jóladagatalsins Klængur sniðugi ásamt Davíð Þór Jónssyni og skrifaði og lék í Trjálfunum ásamt Helgu Brögu Jónsdóttur. Þá þekkja íslenskir foreldrar og börn rödd Steins býsna vel, en hann hefur talsett ógrynni teiknimynda og barnaefnis undanfarin ár. Auk þessa starfaði hann um hríð í Reiðhjólaversluninni Erninum og var leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn á sumrin. Hann er þó einna þekktastur fyrir að vera annar helmingur gamantvíeykisins Radíusbræðra, ásamt Davíð Þór Jónssyni. Radíusbróðir Radíus hóf göngu sína sem útvarpsþættir á Aðalstöðinni árið 1992 sem var fylgt eftir með samnefndum sjónvarpsþáttum í Ríkissjónvarpinu 1994. Radíusbræður komu einnig að gamanþáttaröðinni Limbó eftir Óskar Jónasson frá 1993. Hér má sjá upphaf fyrsta þáttar af Radíus sem var frumsýndur 7. október 1994. Steinn Ármann Magnússon leikari er fallinn frá. Hann lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða og var annar Radíusbræðra. Þeir Steinn Ármann og Davíð Þór áttu áratuga langan vinskap og unnu saman í fjölda ára áður en þeir urðu kenndir við Radíus. Félagarnir voru til að mynda í viðtali í Morgunblaðinu 17. júní 1981 vegna stuttmyndar sem þeir framleiddu, ásamt þeim Bjarna S. Einarssyni og Inga H. Guðjónssyni, við Flensborgarskólann. Stuttmyndin bar heitið Sætbeiska sextánda árið . Samtök áhugamanna um kvikmyndagerð á Norðurlöndum gáfu myndinni gullverðlaun í yngsta aldursflokki í árlegri keppni. Henni er lýst sem raunsærri mynd um fyrstu ástina. „Strákurinn eltir elskuna sína hvert sem hún fer og inní atburðarásina fléttast dagdraumar hans. Hann er aumkunarverður,“ sagði Steinn Ármann um kvikmyndina í viðtalinu – þá 16 ára gamall.