Steinn Ármann Magnússon lést á föstudag . Leikarinn ruddi sér til rúms á tíunda áratug síðustu aldar. Hann lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða yfir áratugina og naut mikilla vinsælda á skjánum. Hér rifjum við upp fáein eftirminnileg hlutverk Steins Ármanns sem er að finna í Safni RÚV og víðar. Radíusbróðirinn Steinn Ármann Steinn Ármann vakti fyrst athygli sem helmingur gamantvíeykisins Radíusbræðra ásamt Davíð Þór Jónssyni. Radíus hóf göngu sína sem útvarpsþáttaröð á Aðalstöðinni árið 1992 sem var fylgt eftir með samnefndum sjónvarpsþáttum í Ríkissjónvarpinu 1994. Hér er upphaf fyrsta þáttar af sjónvarpsþáttunum Radíus . Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina. Radíusbræður komu víðar við. Hér er eftirminnilegur skets með þeim Steini Ármanni og Davíð Þór úr menningarþáttunum Dagsljósi frá 1995. Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina. Þá léku félagarnir einnig í mörgum eftirminnilegum auglýsingum fyrir SS-pylsur. Kötturinn Keli Fjölmargir landsmenn þekkja Stein Ármann einna helst fyrir að leika köttinn Kela í Stundinni okkar . Steinn Ármann var í þáttunum ásamt Ástu Hrafnhildi Garðarsdóttur frá 1997 til 2001 en það tímabil þáttanna er alla jafna kennt við Kela og Ástu. Það var ávallt stutt í grínið hjá leikaranum. Hér er brot úr brandarahorni Kela. Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina. Steinn Ármann rifjaði upp hvernig var að leika Kela í sérstökum þætti um Stundina okkar árið 2012. Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina. Ekki alltaf eintómt grín Þó að Steinn Ármann sé þekktastur fyrir gaman og grín tók hann að sér fjölbreytt hlutverk í gegnum áratugina. Hann lék til dæmis í kvikmyndunum Héraðinu, Hross í oss og Svartur á leik . Hann fór með hlutverk Ketils í annarri seríu af Ófærð sem kom út á árunum 2018 og 2019. Hér er stutt brot úr fyrsta þætti seríunnar. Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina. Teiknimyndir og risatröllið Rauður Steinn Ármann talaði mikið inn á teiknimyndir og barnaefni yfir áratugina – enda algjör snillingur í raddbeitingu. Hann lék til dæmis risatröllið Rauð í teiknimyndaþáttunum Ormhildarsögu sem voru frumsýndir á árinu. Rauður er í sjöunda þætti Ormhildarsögu . Hægt er að horfa á þáttinn hér fyrir neðan. Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina. Steinn Ármann 1987, 1997 og 2019 Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður var skólabróðir Steins Ármanns. Hann tók viðtal við Stein Ármann árið 1987 fyrir heimildarmyndina Ungir Íslendingar og svo aftur árið 1997 fyrir framhaldsverkið Ungir Íslendingar tíu árum síðar . Hafdís Helga Helgadóttir tók viðtöl við skólabræðurna árið 2019 fyrir menningarþættina Sumarið. Steinn Ármann Magnússon varð þjóðþekktur á tíunda áratugi síðustu aldar. Við rifjum upp fjölda hlutverka hans í gegnum tíðina.