Lestin á Rás 1 var tileinkuð Steini Ármanni Magnússyni og Radíusbræðrum í vikunni. Síðustu helgi bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann væri látinn. Kristján Guðjónsson fékk Jón Gnarr, þingmann og grínista, til að ræða um íslenskt grín og áhrif Steins Ármanns á senuna. Var í algjörum sérflokki Jón Gnarr segir það umbúðalaust að íslenska grínsenan hafi verið algjör eyðimörk áður en Radíusbræður komu á sjónarsviðið í byrjun tíunda áratugsins á síðustu öld. Jón flutti til Svíþjóðar á þessum tíma. Þar kynntist hann uppistandi sem hann hafði aldrei séð á Íslandi. „Svo flutti ég heim og uppgötva Radíusbræður og þar kvað við algjörlega nýjan tón. Það var kallað á þessum tíma súrrealískt grín, en grín er í eðli sínu súrrealískt,“ segir Jón Gnarr og útskýrir að það séu sketsar sem hafa ekki beinlínis endapunkt eða „punchline.“ „Sem mér fannst ógeðslega fyndið og þar var Steinn í algjörum sérflokki.“ Jón Gnarr rifjaði upp fyrstu kynni af Steini Ármanni Magnússyni í Lestinni og þau miklu áhrif sem Radíusbræður höfðu á íslenskt grín og hann sjálfan sem grínista. Enginn náði gríninu nema Steinn Jón Gnarr fer yfir hvernig hann byrjaði í gríni. Hann og Sigurjón Kjartansson hafi sífellt verið að fíflast og bulla þegar þeir voru tveir einir. Þeir byrjuðu svo að koma fram á litlum skemmtikvöldum innan vinahópsins. Það er minnisstætt þegar við vorum á skemmtikvöldi í MH, þar sem við vorum tveir á sviðinu, í raun að fyrirmynd Radíusbræðra, og það hló enginn nema einn maður sem sat aftarlega og grét af hlátri. Það var Steinn Ármann. Það fyndna við þetta var hvað þetta var ófyndið og hann náði því. Steinn Ármann og Radíusbræður voru örlagavaldar í gríni Jóns Gnarr og Sigurjóns Kjartanssonar sem seinna mynduðu grínteymið Tvíhöfða. „Þegar Radíusbræður fengu sinn þátt á RÚV þá var það honum mikið kappsmál að fá okkur til að flytja þar leikþáttinn sem hann hafði séð okkur flytja á sviði. Það er fyrsta skipti sem við Sigurjón komum opinberlega fram og leikþátturinn heitir Dularfulli penninn.“ Í Lestinni fer Jón Gnarr vel yfir sögu þessara tegundar gríns og hvernig þróunin var, byrjun uppistands á Íslandi og hvernig orðið uppistand varð til. Aðspurður um uppáhaldsatriðið með Radíusbræðrum nefnir Jón Gnarr hinn fræga eintöluskets, þar sem Steinn Ármann notar eintöluorð yfir orð sem eingöngu eru til í fleirtölu. Þetta er radíusflugan Trefj sem margir kannast við. Jón Gnarr rifjaði upp fyrstu kynni af Steini Ármanni Magnússyni í Lestinni og þau miklu áhrif sem Radíusbræður höfðu á íslenskt grín og hann sjálfan sem grínista.