Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heiðrún hirðir toppsætið á ný

Read Full Article →

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, var tekjuhæst á lista Tekjublaðsins yfir fulltrúa hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins í fyrra. Miðað við greitt útsvar var Heiðrún með tæplega 5,5 milljónir króna á mánuði í fyrra. Heiðrún var áður tekjuhæst árið 2023 en í öðru sæti á listanum í fyrra með rétt rúmlega 5 milljónir á mánuði árið 2024. Þá var Sigríður Margrét Oddsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og núverandi forstjóri Bláa lónsins, í toppsætinu með 6,2 milljónir á mánuði. Í fyrra var Sigríður Margrét með 4,8 milljónir á mánuði. Jón Ólafur Halldórsson, sem tók við sem formaður Samtaka atvinnulífsins í maí 2025 og var áður formaður Samtaka verslunar og þjónustu, er í öðru sæti listans með rétt tæplega 5 milljónir á mánuði. Því næst kemur Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, með 4,7 milljónir. Heiðrún Emilía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, er í fjórða sæti en með nokkuð lægri laun, eða um 3,3 milljónir á mánuði. Af verkalýðsleiðtogunum var Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, tekjuhæstur með tæplega 2,6 milljónir. Næst kom Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, með 2,5 milljónir á mánuði. Perla Ösp Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar, fylgdi þar á eftir með 2,4 milljónir. Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér og fá það heimsent. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article