Einungis tvær konur eru á topp 20 listanum yfir tekjuhæsta fólk landsins í Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Í fyrra náðu fimm konur á topp 20. Á topp 50 listanum eru sjö konur. Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, er tekjuhæsta kona landsins og í níunda sæti yfir tekjuhæstu Íslendingana. Auður var með 12,6 milljónir króna í tekjur á mánuði á síðasta ári og tæplega þrefaldaði tekjur sínar milli ára, en árið á undan var hún með 4,4 milljónir á mánuði. Í öðru sæti yfir tekjuhæstu konur landsins er Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, en hún er í þrettánda sæti heildarlistans. Rannveig var með 11,3 milljónir króna á mánuði í fyrra og tekjur hennar hækkuðu lítillega milli ára. Rannveig hóf störf hjá álverinu árið 1990 og var forstjóri frá 1997 þar til í maí síðastliðnum. Erna Gísladóttir, forstjóri BL, er í þriðja sæti kvennalistans með 7,5 milljónir króna á mánuði og í 32. sæti heildarlistans. Tekjur Ernu hækkuðu um rúm 35% milli ára. Á eftir henni kemur Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls á Grundartanga, með sömu mánaðartekjur og í 33. sæti. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri Aztiq, fylgir fast á eftir í 34. sæti með 7,4 milljónir á mánuði og hækkuðu tekjur hennar verulega milli ára eða um 76%. Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, er í 36. sæti heildarlistans með 7,2 milljónir króna á mánuði og hækkuðu tekjur hennar um tæp 19% milli ára. Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania, er sjöunda konan á topp 50 listanum með 6,8 milljónir króna á mánuði í 43. sæti. Tekjur hennar hækkuðu um 67% milli ára. Sú tekjuhæsta í fyrra fór af listanum í ár Konum á topp 20 fækkar verulega frá fyrra ári þegar þær voru fimm. Linda Jónsdóttir, sem var tekjuhæsta kona landsins í fyrra með 35 milljónir króna á mánuði, er ekki á listanum í ár. Á síðasta ári voru tekjur hennar 5,8 milljónir á mánuði. Hrund Rudolfsdóttir, fyrrverandi forstjóri Veritas Capital, Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, forstjóri Genís, og Stacey Beth Katz, fjármálastjóri Wisefish, sem allar voru í hópi tekjuhæstu kvenna í fyrra, eru ekki á listanum að þessu sinni. Rannveig Rist er eina konan sem heldur sæti sínu á topp 20 milli ára. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.