Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tekjuhæsti aðstoðarmaðurinn með tæpar 3 milljónir

Read Full Article →

Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, var tekjuhæsti aðstoðarmaður ráðherra í fyrra á lista Tekjublaðsins. Miðað við greitt útsvar námu tekjur hans ríflega 2,9 milljónum króna á mánuði. Jón Magnús gerðist aðstoðarmaður Ölmu í janúar 2025 en hann er sérfræðingur í bráðalækningum og fyrrum yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala. Hann greindi aftur á móti frá því í júní síðastliðnum að hann myndi hætta sem aðstoðarmaður Ölmu og snúa sér aftur að læknastörfum. Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarmaður Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, var næst tekjuhæstur en hann var með tæplega 2,4 milljónir á mánuði. Aðalsteinn Leifsson, sem var aðstoðarmaður utanríkisráðherra þar til í vor, kom næst á eftir með ríflega 2 milljónir. Lárus M. K. Ólafsson, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, var þá með tæplega 1,9 milljónir. Aðrir aðstoðarmenn voru með í kringum 1,7 milljónir á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér og fá það heimsent. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article