Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sýn fellur um 5% eftir viðræðuslit

Read Full Article →

Gengi Sýnar hefur lækkað um 4,76% það sem af er morgni og gengi Símans hefur hækkað um 2,46% þegar fréttin er skrifuð. Í gærkvöldi barst tilkynning frá Ásum, móðurfélagi Símans, um að viðræðum um kaup Ása á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hefði verið slitið. Sjá einnig Falla frá kaupum Símans á fjölmiðlum Sýnar Kaupin hefðu náð til vefmiðlanna Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Heildarvirði viðskiptanna var metið á 5.250 milljónir króna samkvæmt skilmálaskjali. Sjá einnig Ásar með 16 milljarða ónotaða lána­línu Gengi Sýnar stendur nú í 20 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra í 5 mánuði eða síðan um miðjan mars. Gengi Símans stendur í 12,5 krónum á hlut. Velta hefur verið heldur meiri með bréf Símans, 46 milljónir króna, en velta með bréf Sýnar aðeins 3 milljónir króna þegar fréttin er skrifuð.

Share this article