Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

700 tonnum landað og önnur 650 tonn á leiðinni

Read Full Article →

Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í gær með 700 tonn af makríl. Löndun og vinnsla hófst strax eftir að lagst var að bryggju. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Guðmund Þ. Jónsson, skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni, sem segir mikið hafa verið leitað upp á síðkastið og menn fengið veiðiskot annað slagið. Skot skammt frá norsku línunni „Við erum í veiðisamstarfi með Margréti EA, Berki NK og Beiti NK og aflinn sem við erum með núna er frá okkur og þessum þremur skipum. Þegar þessi afli fékkst voru skipin að fá 100 til 200 tonn í holi og það var dregið í eina sex tíma. Þetta skot kom skammt frá norsku línunni,“ segir Vilhelm á svn.is. Fyrirhöfn að ná í makrílinn en hann sé virkilega fallegur Líkt og Hjalti Einarsson, skipstjóri á Svani RE, segir í Fiskifréttum í dag , eru ekki mörg skip að makrílveiðum á þessum slóðum núna. Þau séu íslensk og færeysk auk nokkurra Rússa. „Eftir að við lögðum af stað í land var svolítil veiði en það dró fljótt úr henni. Það er vissulega fyrirhafnarmikið að ná í makrílinn en sá fiskur sem fæst er virkilega fallegur,” segir Guðmundur. Makríllinn heilfrystur Þá er rætt við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, sem segir að vel gengi að vinna makrílinn úr Vilhelm Þorsteinssyni. Makríllinn sé heilfrystur og það gangi vel. Börkur NK á landleið með 650 tonn „Áður en við hófum vinnslu á þessum makrílfarmi vorum við að vinna kolmunna úr Bjarna Ólafssyni AK og það gekk einnig vel. Það hefur verið einhver veiði á makrílmiðunum núna því Börkur NK er á landleið með 650 tonn og það er von á honum til hafnar í nótt,” segir Geir Sigurpáll á vef Síldarvinnslunnar.

Share this article