Makrílvertíð er lokið hjá Síldarvinnslunni. Af því tilefni var haft samband við Odd Einarsson yfirverkstjóra í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað og hann beðinn um að greina frá gangi vertíðarinnar. „Það er hægt að segja að makrílvertíðin hafi ekki verið eins stór og undanfarin ár en hún var góð og gekk í alla staði býsna vel hvað vinnsluna varðar,“ segir Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu í samtali við tíðindamann Síldarvinnslunnar. „Vinnsla á makríl hófst hjá okkur þann 7. ágúst og henni lauk þann 8. september. Þetta var sem sagt vertíð sem stóð í einn mánuð hjá okkur í vinnslunni. Við tókum á móti 7.300 tonnum af makríl á þessari vertíð og framleiddum 6.000 tonn af afurðum. Yfirleitt hefur makrílveiði hafist fyrr og vertíðinni lokið í lok ágúst en nú var kvótinn minni og vertíðin hófst síðar. Á vertíðinni var öll áhersla lögð á að skipin kæmu með gott hráefni að landi. Farmarnir sem bárust til okkar voru tiltölulega litlir, það var stutt dregið og aflinn var vel kældur um borð í skipunum. Veiðisamstarf skipanna skipti gríðarlegu máli í þessu sambandi. Síldarvinnsluskipin Börkur NK og Beitir NK voru lengst af í samstarfi með Margréti EA og Vilhelm Þorsteinssyni EA. Samstarfið leiddi til þess að fiskurinn var ferskur þegar komið var með hann að landi því hverju sinni var afli samstarfsskipanna settur í eitt þeirra sem færði hann síðan að landi. Fiskurinn sem við fengum til vinnslu var afar flottur; stór og fallegur og gjarnan 550-600 grömm að stærð. Öll áhersla var lögð á að frysta makrílinn. Bróðurparturinn af makrílnum sem barst til okkar var heilfrystur eða um 5.500 tonn. Síðan voru um 500 tonn hausuð. Það er alveg ljóst að þessi makríll er úrvalsvara og kaupendur verða örugglega ánægðir með hana. Nú á síldin hug okkar allan Oft var ekki mikill kraftur í veiðinni en þó komu góð veiðiskot inn á milli. Veitt var í Smugunni og undir lokin var veitt í norskri lögsögu. Veiðiskipin þurftu stundum að leita langtímum saman og þá kom hlé í vinnsluna hjá okkur. Þessi hlé voru meðal annars nýtt til að frysta kolmunna til manneldis. Bjarni Ólafsson AK fór í eina fjóra túra í Rósagarðinn og kom með afar góðan kolmunna að landi sem hentaði vel til vinnslu. Veiðin hjá honum gekk vel og í þessum fjórum veiðiferðum kom hann með 2.100 tonn og af þeim voru um 1.200 tonn fryst. Það var alveg frábært að nota eyðurnar í makrílvertíðinni til kolmunnafrystingar. Nú er síldarvertíð hafin og fyrsti síldarfarmurinn barst til okkar sl. miðvikudag þegar Börkur kom með 1.200 tonn af fallegri síld sem veidd var hér rétt fyrir utan. Nú er lokið við að vinna þann farm og framundan er gott helgarfrí hjá starfsfólki fiskiðjuversins. Staðreyndin er sú að nú á blessuð síldin hug okkar allan,” sagði Oddur.