Arion banki er sá fjárfestingarkostur sem flestir þátttakendur í nýrri viðhorfskönnun Akkurs telja álitlegastan um þessar mundir. Bjartsýni á íslenska hlutabréfamarkaðinn hefur jafnframt aukist og enginn þátttakandi telur markaðinn yfirverðlagðan. Arion banki fékk 25% atkvæða þegar þátttakendur voru spurðir hvaða félag þeim þætti vera besti fjárfestingarkostur á markaðnum í dag. Icelandair og Íslandsbanki komu þar á eftir með 11,5% atkvæða hvort félag um sig. Athygli vekur að næstalgengasta svarið var „ekkert félag“, sem 15,4% þátttakenda völdu. Könnunin var framkvæmd dagana 23. til 25. ágúst en ekki kemur fram hversu mörg svör bárust. Mikil bjartsýni á hlutabréf Niðurstöðurnar benda til þess að væntingar til íslenska hlutabréfamarkaðarins hafi styrkst frá síðasta mánuði. Alls gera 92,4% þátttakenda ráð fyrir að OMXI15-vísitala aðalmarkaðar íslensku Kauphallarinnar verði hærri eftir tólf mánuði en 5,8% gera ráð fyrir lækkun. Munurinn á hlutfalli þeirra sem búast við hækkun og lækkun vísitölunnar næstu tólf mánuði, svokallað bull-bear spread, mælist því 86,5 prósentustig, samanborið við 74,5 prósentustig í júlí. Það er mesta bjartsýni sem mælst hefur frá því Akkur hóf mælingarnar. Enginn þátttakenda telur íslenska hlutabréfamarkaðinn yfirverðlagðan. Um 82,7% telja hann undirverðlagðan og þar af telja 26,9% að markaðurinn sé meira en 20% undir eðlilegu verðmati. Þá telja 17,3% markaðinn rétt metinn. Sjá einnig Íslenskir fjárfestar sjá bolamarkað fram undan Flestir búast við vaxtalækkun Væntingar um vaxtalækkanir hafa jafnframt aukist á ný. Alls gera 88,5% þátttakenda ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði lægri eftir tólf mánuði, samanborið við 52,7% í júlí og 70,4% í júní. Á sex mánaða tímahorfi búast 30,8% við vaxtalækkun en 7,7% við hækkun. Í júlí töldu 45,5% að vextir myndu hækka á næstu sex mánuðum. Verðbólguvæntingar hafa þróast í sömu átt, en 90,4% þátttakenda búast við að verðbólga verði lægri eftir tólf mánuði. Könnunin tók einnig fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Alls töldu 61,5% þátttakenda að nei yrði ofan á en 38,5% bjuggust við sigri já-hliðarinnar. Algengasta einstaka niðurstaðan var naumur sigur nei-hliðarinnar, sem 46,2% þátttakenda spáðu.