Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.8.2026 | 23:10 Ný hraðþjónusta í öryggisleit í Keflavík alls ekki ný Keflavíkurflugvöllur auglýsir nú Hraðleið í öryggisleit en í samtali við upplýsingafulltrúa Isavia kemur í ljós að þjónustan er tíu ára gömul. Nú býðst hún hins vegar öllum sem vilja láta 2.480 krónur fyrir að komast hraðar gegnum leitina. mbl.is/​Hari Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Keflavíkurflugvöllur auglýsir nú svokallaða Hraðleið í öryggisleit fyrir flug og mátti á einum samfélagsmiðli nýverið lesa eftirfarandi auglýsingu: Nú getur þú bókað Hraðleið í öryggisleit til að spara þér tíma. Bókunin tengist við brottfararspjaldið þitt og er einföld og þægileg leið til að koma þér hraðar í gegnum leitina. Lék mbl.is hugur á að vita í hverju þjónustan fælist og hvort hin hefðbundna almenna biðröð í leitina færðist þá ekki bara yfir í Hraðleiðina. Fyrir svörum hjá Isavia rekstraraðila flugvallarins varð Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi sem segir fyrirbærið alls ekki nýtt, hins vegar bjóðist þjónustan nú fleirum en áður en þess má geta að bóka þarf hana sérstaklega og greiða fyrir hana. Í skilmálum Hraðleiðar, sem birtir eru undir spurningum og svörum um hana á heimasíðu vallarins, kemur fram að gjaldið sé 2.480 krónur á hvern farþega og sé það óháð aldri. „ Slepptu röðinni og njóttu lengur,“ segir í auglýsingunni sem ekki snýst um að farþegar fái að njóta þess að vera lengur í öryggisleit heldur að geta frílystað sig lengur í flugstöðinni fyrir flug sem mörgum þykir notaleg upplifun fram að flugi sínu. Skjáskot/Auglýsing flugvallarins Til staðar í áratug Segir Guðjón flugfarþega kannast við slíka þjónustu af flugvöllum víða um heim. „Þessi þjónusta hefur verið til staðar á Keflavíkurflugvelli í um áratug. Frá því hún byrjaði og þar til fyrir um ári var hún eingöngu í boði fyrir farþega þeirra flugfélaga sem voru aðilar að þjónustunni, oft þá fyrir farþega sem ferðuðust til að mynda á viðskiptafarrými eða viðlíka,“ segir upplýsingafulltrúinn. Önnur þjónustufyrirtæki á vellinum hafi einnig boðið sínum viðskiptavinum sínum upp á þjónustuna, svo sem farangursinnritunarfyrirtækið BagBee sem býður meðal annars þá þjónustu að sækja farangur heim til fólks, flytja hann út á völl og innrita. Hvað ef „allir“ bóka Hraðleið? „Á síðustu árum höfum við orðið vör við að eftirspurn væri eftir þessari þjónustu almennt frá farþegum enda þeir vanir því að geta keypt slíka þjónustu á mörgum erlendum flugvöllum,“ heldur Guðjón áfram. Hafi því verið ráðist í að bæta þessu við vöruframboðið og þá fyrir alla farþega sem þess óski. Gagnist þetta þeim farþegum sem vilji treysta á að komast hratt í gegnum öryggisleit þrátt fyrir að biðtími sé að sögn Guðjóns almennt ekki langur. Hvað gerist þá ef „allir“ bóka Hraðleiðina, stefnir þá ekki í óefni með röð þar? „Ef álagið á hraðleiðinni er mikið stýrir starfsfólk öryggisleitar röðinni þannig að hún dreifist á fleiri en eina leitarlínu eftir að komið er inn fyrir hliðið þannig að hægt sé að tryggja lágmarksbiðtíma,“ svarar Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi um þetta gamla, en nú nýja fyrir suma, fyrirkomulag við öryggisleitina. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Dagný Brynjarsdóttir í nýtt starf „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Handtekinn með fallöxi í pallbílnum við þingið Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Umræðan Vildum við missa af EES? Lagaprófessorar HR mæta til leiks Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er meira fram undan“ Kadis ýjar að aðlögun við aðild „Litið á mig sem dópista“ Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Dagný Brynjarsdóttir í nýtt starf „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Handtekinn með fallöxi í pallbílnum við þingið Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Umræðan Vildum við missa af EES? Lagaprófessorar HR mæta til leiks Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ „Hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“

Share this article