Innlent | Morgunblaðið | 3.9.2026 | 8:02 Álíka margir farþegar í Keflavík og 2023 Samtals 5,26 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu átta mánuði þessa árs. mbl.is/Eyþór Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tæplega 5,26 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll á fyrstu átta mánuðum ársins. Það er álíka fjöldi og árið 2023, eins og lesa má úr grafinu hér til hliðar, en 8% fækkun milli ára. Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga- og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli, segir meginskýringuna á fækkun farþega milli ára þá að flugfélagið Play hætti starfsemi í fyrrahaust en félagið flutti 867.000 farþega fyrstu átta mánuðina í fyrra. Hafði Play þá dregið úr framboði vegna rekstrarvanda. Grétar Már segir fjölda farþega á fyrstu átta mánuðum ársins vera 0,7% yfir farþegaspá Isavia, sem hljóðar upp á 7,5 milljónir farþega í ár. Hann segir að með hliðsjón af þeim flugfélögum sem hafa sótt um lendingarleyfi í vetur, eða á tímabilinu frá nóvember til mars, muni framboðið aukast um 14% milli ára eða um tæplega 400 þúsund flugsæti. „Umferðin mun því aukast um tveggja stafa tölu en við erum sem flugvöllur ekki að stefna á 20-40% vöxt eins og á árunum 2012 til 2018. Við vitum svo betur í nóvember hvernig mánuðirnir frá apríl til október líta út á næsta ári en þá munu umsóknir um lendingarleyfi liggja fyrir,“ segir Grétar Már um horfurnar á næsta ári. Aukning hjá Icelandair Meðal annars hyggist átta flugfélög auka framboðið í vetur um samtals ríflega 300 þúsund flugsæti. Í fyrsta lagi muni Icelandair bæta við 65.000 flugsætum tímabilið frá nóvember til mars, sem sé 3% aukning á heildarframboði félagsins, og í öðru lagi muni Finnair bæta við 13.000 flugsætum, sem sé 17% aukning frá árinu á undan. Í þriðja lagi muni hollenska flugfélagið Transavia bæta við 28.000 flugsætum, sem sé 52% aukning á framboðinu. Í fjórða lagi muni SAS bæta við 77.000 flugsætum, sem sé 83% aukning, og í fimmta lagi muni easyJet bæta við 71.000 sætum, sem sé 22% aukning. Ísland sé einn fárra markaða þar sem easyJet bætir við framboðið í vetur. Í sjötta lagi muni United Airlines fljúga frá Chicago í vetur og bæta 9.000 sætum við fyrra framboð. Í sjöunda lagi muni Air China hefja flug til Keflavíkur 26. október og bjóða 39.000 flugsæti fram í mars. Í áttunda lagi muni Vueling hefja flug frá Barcelona í vetur og bæta 6.000 sætum við framboðið. Vueling hafi ætlað sér að vera með meira flug til Keflavíkur í vetur en vegna eldsneytismála hafi það ekki gengið eftir. Þrjú fóru, þrjú komu Grétar Már segir að á móti þessari aukningu muni Air Greenland, Norwegian og Austrian Airlines ekki fljúga til Keflavíkur í vetur. Tilkoma Air China, United Airlines og Vueling vegi þyngra enda sé sætaframboð þeirra meira en hinna flugfélaganna. Íslendingar munu því sem fyrr geta valið um fjölda áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli í vetur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hugurinn leitaði á heimaslóðir Álíka margir farþegar í Keflavík og 2023 Einstaklega smekkleg íbúð til leigu við Nýhöfn Einn af hverjum sex fólkbílum frá Kína Vilhjálmur og Katrín fara varlega í sakirnar Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Ríkið borgar brúsann Flokkur fólksins gæti klofnað Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Mest lesið Í gær Í vikunni Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Bankaskattar hér fimmfalt hærri Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA Eldur í Rimaskóla og í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Flokkur fólksins gæti klofnað Einn vann 1,9 milljónir Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Hugurinn leitaði á heimaslóðir Álíka margir farþegar í Keflavík og 2023 Einstaklega smekkleg íbúð til leigu við Nýhöfn Einn af hverjum sex fólkbílum frá Kína Vilhjálmur og Katrín fara varlega í sakirnar Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markaðurinn sýndi engin viðbrögð Kerlínan nú rekin með 95% afköstum Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Bankaskattar hér fimmfalt hærri Mest lesið Í gær Í vikunni Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Bankaskattar hér fimmfalt hærri Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA Eldur í Rimaskóla og í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Flokkur fólksins gæti klofnað Einn vann 1,9 milljónir Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar