Fagkaup hefur keypt eftirstandandi 30% hlut Daníels Sigurðssonar í kranafyrirtækinu DS Lausnum og á félagið því nú að fullu. Fagkaup keypti 70% hlut Daníels í DS Lausnum á síðasta ári en samkvæmt RÚV gengu kaup á eftirstandandi hlutnum í gegn í sumar. Bogi Þór Siguroddsson, annar eigenda Fagkaupa, staðfesti viðskiptin í samtali við Ríkisútvarpið. Sjá einnig Fagkaup að kaupa 70% í DS Lausnum Daníel, sem stofnaði DS Lausnir, var skattakóngur ársins eftir að hafa greitt 942 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt á síðasta ári. Fjármagnstekjur hans námu tæpum 4,3 milljörðum króna. DS Lausnir skilaði rúmlega 580 milljóna króna hagnaði í fyrra af 2,5 milljarða króna veltu. Árið áður nam hagnaður félagsins rúmlega 600 milljónum króna. Sjá einnig Skattakóngur ársins greiddi milljarð í skatt Fagkaup er í eigu Boga Þórs og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur og á meðal annars Johann Rönning, Sindra, Vatn og Veitur og Áltak. Samstæðan velti rúmlega 27 milljörðum króna á síðasta ári og skilaði 870 milljónum króna í hagnað.