Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjaldgæfur fundur í Seðlabankanum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2026 | 12:30 | Uppfært 12:58 Sjaldgæfur fundur í Seðlabankanum Ásgeir og Þorgerður á samsettri mynd. mbl.is/Eggert Jóhannesson/AFP/Nicolas Tucat Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Stjórnvöld dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið“ „Höfum ekki efni á því að gefast upp“ „Vont mál fyrir alla þjóðina“ „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Verðbólgan sú mesta í tvö ár » Fleiri tengdar fréttir Ekki virðist vera venja fyrir því að utanríkisráðherra ræði við seðlabankastjóra líkt og gerðist þann 12. ágúst þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ræddi við Ásgeir Jónsson yfir hádegisverði. Athygli vakti að fundurinn átti sér stað skömmu fyrir ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti þann 19. ágúst. „Þar voru heimsmálin rædd,“ segir í svari Seðlabankans við fyrirspurn Morgunblaðsins um efni fundarins. Áður hafði ráðuneytið svarað því til að þetta væri fundur eins og aðrir forverar utanríkisráðherra hafi haft við Seðlabankastjóra og því slegið föstu að vaxtaákvörðun hafi ekki komið til tals á fundinum. „Þorgerður, líkt og forverar hennar í starfi, hefur átt fundi með seðlabankastjóra til að ræða stöðu heimsmála. Vaxtaákvörðun var ekkert rætt á fundi þeirra á dögunum.“ Fyrrverandi ráðherrar kannast ekki við fundi Fyrrverandi utanríkisráðherrar sem Morgunblaðið leitaði til sögðust ekki hafa rætt við seðlabankastjóra í sinni ráðherratíð. Gunnar Bragi Sveinsson, sem var utanríkisráðherra Framsóknarflokksins og er núverandi þingmaður Miðflokksins, segist ekki hafa átt formlegan fund með seðlabankastjóra á meðan hann var í embætti 2013-2016. Aðspurður segist hann ekki vita hvernig svið þeirra skarist. „Mér dettur ekkert annað í hug en að utanríkisráðherrann sé að reyna að beita seðlabankastjórann einhvers konar þrýstingi út af gjaldmiðlaumræðu og öðru slíku. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Það er náttúrlega alveg ljóst að seðlabankastjóri hefur ekki talað með evru allavega. Á meðan talar formaður bankaráðs með evrunni og grefur þannig undan gjaldmiðlinum okkar. Þannig að ég get ekki ímyndað mér annað en að þetta hafi verið einhvers konar þrýstingsfundur af hennar hálfu,“ segir Gunnar. Guðlaugur Þór Þórðarson var utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins 2017-2021. Hann var spurður að því hvort hann hefði átt fundi með seðlabankastjóra í sinni ráðherratíð: „Nei, ég gerði það nú aldrei. Mig rekur ekki minni til þess.“ Spurður að því hvað gæti verið rætt á svona fundi sagði Guðlaugur: „Það er ekki gott að segja. Ekkert sem snýr að málefnasviði ráðuneytisins. Ég held að það væri best ef utanríkisráðherra segði frá því hvert tilefni fundarins var og hvað var rætt.“ Morgunblaðið náði ekki í Þorgerði Katrínu vegna málsins en sendi fyrirspurn á aðstoðarmann ráðherrans. Engin svör bárust áður en blaðið fór í prent. Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins frá 2023-2024 sagðist ekki muna hvort hann hefði átt fundi með seðlabankastjóra á sínum tíma. „En sem formaður í stórum stjórnmálaflokki þá reyndi maður að halda góðum samskiptum í allar áttir í samfélaginu. Það reynir á margt fyrir formenn flokka.“ Ekki náðist í Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Lilja Alfreðsdóttir vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Stjórnvöld dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið“ „Höfum ekki efni á því að gefast upp“ „Vont mál fyrir alla þjóðina“ „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Verðbólgan sú mesta í tvö ár » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Ég er með engil mér við hlið“ Ratko Mladic er látinn Rússneskur ökumaður handtekinn eftir að tveir létust Á förum frá Manchester City Sjaldgæfur fundur í Seðlabankanum Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir 517 útlendinga ófundna eftir mannskæð flóð Kauptækifæri á fasteignamarkaði Segja framsetningu Viðskiptaráðs villandi „Vont mál fyrir alla þjóðina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Endurskoðar endurgreiðslur „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » „Ég er með engil mér við hlið“ Ratko Mladic er látinn Rússneskur ökumaður handtekinn eftir að tveir létust Á förum frá Manchester City Sjaldgæfur fundur í Seðlabankanum Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Endurskoðar endurgreiðslur „Þetta er risastór grafreitur“ Hundruð ferðamanna saknað í Nepal Uppsagnir ná einungis 15% af markmiðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Styttir heimsókn sína til Íslands „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Endurskoðar endurgreiðslur „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka

Share this article