Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Heimsmet féllu í grindahlaupi

Read Full Article →

Brasilíski Alison dos Santos sló heimsmet í 400 metra grindahlaupi á Demantamótinu í Zurich í kvöld. Hann kom í mark á 45,80 sekúndum og bætti met Karsten Warholm um 0,14 sekúndur. Það var ekki eina heimsmetið sem féll í kvöld því 40 mínutum síðar sló bandaríska Masai Russell metið í 100 metra grindahlaupi. Hún kom í mark á 12,09 sekúndum. Metið var áður í höndum Tobi Amusan frá árinu 2022 og stóð í 12,12 sekúndum. „Ég heyrði að Alison hefði slegið heimsmetið þegar ég var inni. Ég hafði séð Julien Alfred hlaupa á 10,70. Brautin er heit, veðrið frábært, það er allt er til staðar fyrir frábæran árangur,“ sagði Russell eftir keppnina.

Share this article