Innlent | mbl | 30.8.2026 | 1:10 „Alveg lygilegt“ Vilborg Ása telur enga leið að spá fyrir um úrslitin. mbl.is/Arnþór Birkisson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ Fyrstu tölur í SV: Hnífjafnt Myndir: Báðar fylkingar fagna » Fleiri tengdar fréttir „Þetta er að verða nákvæmlega eins spennandi og spáð var og í rauninni í samræmi við næstsíðustu könnun Gallup,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, þegar fyrstu tölur í öllum kjördæmum hafa verið kunngjörðar. Já er örlítið yfir með 51,2 prósent atkvæða á móti 48,8 prósent atkvæða þeirra sem segja nei. Í þeirri Gallup könnun sem Vilborg vísar til sögðust 51,5 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að segja já, en 48,5 prósent nei. Munurinn var hins vegar svo lítill að hann var ekki marktækur. Þannig var staðan áður en tölur úr Suðvesturkjördæmi voru birtar, en þær drógu já-hliðina örlítið niður. Frétt af mbl.is Ekki marktækur munur milli jás og neis Mikil stemning ríkir í Hafnarhúsinu þar sem já-sinnar eru með kosningavöku. mbl.is/Eyþór Engin leið að spá fyrir um úrslitin Vilborg segir nánast enga leið að spá fyrir um úrslitin þegar svo mjótt er á munum. Einnig verður að taka inn í myndina að metfjöldi kaus utan kjörfundar og þau atkvæði á eftir að telja. „Þetta er lygilega jafnt og nú vorum við að fá tölur úr kraganum sem voru 9.900 á móti 9.900 og það er alveg lygilegt.“ Staðan núna er samræmi við það sem hún gerði ráð fyrir síðastliðnar þrjár vikur, en nýjustu tvær kannanir bentu þó til að fleiri myndu segja nei. „Síðustu tvær kannanir bentu til þess að það að mögulega væri neiinu að vaxa ásmegin en eins og tölurnar standa núna virðist þetta vera eins hnífjafnt og fyrri spár spáðu fyrir um.“ Úrslitin gætu því jafnvel ekki ráðist fyrr en með síðustu tölum í fyrramálið. „Ég held að það sé allavega fyllsta ástæðan til að fylgjast áfram með, en ekki telja að þetta sé komið eins og fyrir jáið núna. Það munar alltof litlu til að vita hvar þetta fellur á þessum tímapunkti.“ Frétt af mbl.is Ný könnun: 51,6% segja nei en 48,4% segja já Stemningin er ekki síðri í Kolaportinu þar sem nei-sinnar fagna. mbl.is/Eggert Jóhannesson Síðustu mánuðir hollir fyrir lýðræðið Vilborg telur þó ekki að það hafi neikvæðar afleiðingar í för með sér að svo mjótt verði á munum. „Ég tel að síðastliðnir mánuðir hafi verið mjög hollir og góðir fyrir lýðræðið og íslenskt samfélag. Þetta er einungis fyrsta skrefið að mjög grýttri leið að mögulega fullri aðild. Ég geri ráð fyrir að baráttan haldi bara áfram. Ég sé ekki ástæðu til að halda að þetta skrefi muni tvístra þjóðinni á afdrifaríkan máta,“ segir Vilborg, og þá sé sama hvort niðurstaðan verði já eða nei. Þjóðaratkvæðagreiðsla sé heilbrigð leið fyrir lýðræðissamfélag til að útkljá mál. Það sé hins vegar ljóst ef niðurstaðan verður nei, þá séum við ekki á leið í aðildarviðræður við Evrópusambandið. „En hvort við munum skoða það aftur síðar, auðvitað er það ekki útilokað. Það veltur þá á alþjóðlegri þróun, í utanríkisstefnu Bandaríkjanna, í Evrópumálunum sjálfum og hvað varðar Noreg. Ég held að þetta verði áfram umræðuefni.“ Frétt af mbl.is Beint: Talið upp úr kjörkössunum Tengdar fréttir Ísland og ESB Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ Fyrstu tölur í SV: Hnífjafnt Myndir: Báðar fylkingar fagna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ „Alveg lygilegt“ Federer vígður inn í frægðarhöllina Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Engin leið að vita hvernig þetta fer“ Þykir vænt um að sjá að fólkið vilji kjósa „Við höldum að við munum hafa þetta“ Minna samfellt rennerí en áður Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Talið upp úr kjörkössunum Glöð yfir að Íslendingum gangi svona vel Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ Fyrstu tölur í SV: Hnífjafnt Jáið nær forskoti með Reykjavíkurtölum Gaman að sjá svo afgerandi tölur Myndskeið: Fagnaðarlæti í Hafnarhúsinu Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna „Búin að hringja eins og vindurinn í kjósendur“ Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ „Alveg lygilegt“ Federer vígður inn í frægðarhöllina Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún segist bjartsýn: „Ég hef trú á þjóðinni“ „Við höldum að við munum hafa þetta“ Fyrstu tölur gætu borist skömmu eftir miðnætti Þykir vænt um að sjá að fólkið vilji kjósa Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Talið upp úr kjörkössunum Glöð yfir að Íslendingum gangi svona vel Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ Fyrstu tölur í SV: Hnífjafnt Jáið nær forskoti með Reykjavíkurtölum Gaman að sjá svo afgerandi tölur Myndskeið: Fagnaðarlæti í Hafnarhúsinu Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna „Búin að hringja eins og vindurinn í kjósendur“ Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“