Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 31.8.2026 | 5:30 | Uppfært 9:03 Aðsend grein: Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Sigríður Margrét Oddsdóttir Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Ísland stendur frammi fyrir skýru tækifæri í ferðaþjónustu: að skapa meiri verðmæti úr hverri heimsókn, nýta innviði betur allt árið og byggja markvisst á þeim styrkleikum sem gera landið einstakt. Upplifunar- og vellíðunarferðamennska er ein trúverðugasta leiðin til þess. Bláa Lónið hefur á undanförnum áratugum átt þátt í því að ryðja brautina fyrir uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar á Íslandi. Frá upphafi hefur framtíðarsýnin verið skýr, að afla útflutningstekna undir merkjum Íslands sem heilsu- og vellíðunarlands. Framtíðarsýn ein og sér skilar þó ekki árangri nema henni sé fylgt eftir með verkum. Uppbygging Bláa Lónsins hefur svo sannarlega kallað á hugrekki í formi markvissra fjárfestinga í hönnun, vísindum og gæðum en þannig hefur félagið byggt upp einstakt vörumerki sem er þekkt á heimsvísu og stenst allan alþjóðlegan samanburð. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og félagið hefur verið leiðandi afl í hraðri uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu. Nú vinnur félagið að stærsta einstaka fjárfestingarverkefni íslenskrar ferðaþjónustu í Þjórsárdal. Þar verður lögð áhersla á vellíðan í sátt við náttúru og nærsamfélag. Verkefnið endurspeglar þau tækifæri sem felast í því að byggja upp hágæða ferðaþjónustu víðar um landið sem mun auka verðmætasköpun til lengri tíma. Meiri verðmæti, ekki bara fleiri ferðamenn Áframhaldandi vöxtur íslenskrar ferðaþjónustu þarf ekki fyrst og fremst að byggjast á því að hingað komi sífellt fleiri ferðamenn. Skynsamlegri leið er að auka verðmæti hverrar heimsóknar, meðal annars með því að lengja og dreifa betur ferðatímabilinu og nýta þannig betur þá innviði sem búið er að byggja upp. Ísland hefur sérstaklega sterka stöðu á sviði upplifunar- og vellíðunarferðamennsku. Einstök náttúra landsins, staðsetning þess og þeir innviðir sem þegar eru til staðar skapa okkur augljós tækifæri til að laða að ferðamenn sem dvelja lengur og ferðast víðar um landið og skilja þannig eftir meiri verðmæti. Ef núverandi innviðir ferðaþjónustunnar væru betur nýttir utan háannar gæti það skapað um 250 milljarða króna í auknar útflutningstekjur. Slík verðmætasköpun myndi skila ríkissjóði um 55 milljörðum króna í auknar tekjur. Þar eru ekki talin með afleidd áhrif en með þeim má áætla að tekjur ríkissjóðs geti aukist um 100 milljarða króna á ársgrundvelli. Ferðavilji á heimsvísu hefur aldrei verið meiri. Á sama tíma fellur aukin eftirspurn eftir upplifunar- og vellíðunarferðamennsku einstaklega vel að styrkleikum og sérstöðu Íslands. Það er ljóst að þrír af hverjum fjórum ferðamönnum sem heimsækja Ísland fara í náttúruböð eða baðlón meðan á dvöl þeirra stendur. Baðmenningin, sem byggist á sérstöðu náttúru Íslands, og sú þjónusta sem byggð hefur verið upp í kringum hana er einstök á heimsvísu. Baðmenningin er því einn mikilvægasti hluti þeirrar upplifunar sem Ísland hefur upp á að bjóða og höfðar til fjölbreytts hóps ferðamanna. Skattstefna sem styður við aukna verðmætasköpun Íslensk ferðaþjónusta víkur sér ekki undan því að greiða skatta og undanfarið hefur átt sér stað samtal á milli stjórnvalda og greinarinnar um útfærslu náttúruinnviðagjalds. Það er nauðsynlegt að fjárfesta í innviðum, náttúruvernd og þjónustu sem styður við framtíðarsýn og vöxt greinarinnar um allt land. Til þess þarf öfluga tekjustofna en jafnframt stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi sem hvetur til aukinna fjárfestinga og uppbyggingar. Skattstefna þarf að byggjast á skýrri framtíðarsýn og mati á heildaráhrifum. Hún þarf að styðja við áframhaldandi fjárfestingu, aukna framleiðni og samkeppnishæfni Íslands í síharðnandi alþjóðlegri samkeppni um ferðamenn. Hún má ekki vinna gegn þessum markmiðum og veikja þannig greinina og vaxtarmöguleika hennar til lengri tíma. Áform um að ríflega tvöfalda neysluskatta á þá ferðamenn sem velja að heimsækja náttúruböð og baðlón landsins samræmast illa markmiðum um aukna verðmætasköpun og betri nýtingu innviða utan háannar. Aukin skattlagning mun óhjákvæmilega leiða til hærra verðs og draga úr svigrúmi fyrirtækja til aukinna fjárfestinga og uppbyggingar. Slík stefna vinnur því beinlínis gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um aukna verðmætasköpun, lengra ferðatímabil og betri dreifingu ferðamanna. Skynsamlegasta leiðin fyrir ríkissjóð og atvinnugreinina er að auka framleiðni og nýta betur innviði, allt árið um kring og um allt land. Til þess þarf öflugt markaðs- og sölustarf, á réttu mörkuðunum, skýra sókn að réttu markhópunum og rekstrarumhverfi sem hvetur til fjárfestingar og styrkir alþjóðlega samkeppnisstöðu Íslands. Skattspor Bláa Lónsins frá stofnun þess nemur um 60 milljörðum króna og við erum stolt af því framlagi. Við viljum halda áfram að fjárfesta, skapa verðmæti og leggja okkar af mörkum til samfélagsins. Tækifærin eru til staðar, en til að nýta þau þurfa stjórnvöld og atvinnulíf að stefna í sömu átt. Sigríður Margrét Oddsdóttir er forstjóri Bláa Lónsins hf. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » "Ég er ekki nýr listamaður" Gæti enn yfirgefið Atletico Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Ljósanótt lýsir upp bæinn Féll óvænt úr leik í fyrstu umferð Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brugðist við niðurstöðunum Leituðum skjóls í helli Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? Dró saman milli já og nei í lokatölum Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Hart tekist á um bókun 35 Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Hákon VIII. og Björn Skúlason fæddir sama dag Bræðurnir í broddi fylkinga í borginni Hegðaði sér nánast eins og lifandi vera Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda Nýjast á mbl.is » "Ég er ekki nýr listamaður" Gæti enn yfirgefið Atletico Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Ljósanótt lýsir upp bæinn Féll óvænt úr leik í fyrstu umferð Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Verðum að bera virðingu fyrir öllum sjónarmiðum“ Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Utanríkismálanefnd kölluð saman Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Hart tekist á um bókun 35 Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Hákon VIII. og Björn Skúlason fæddir sama dag Bræðurnir í broddi fylkinga í borginni Hegðaði sér nánast eins og lifandi vera Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda

Share this article