Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Verðlaunuð af forseta Íslands

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.9.2026 | 16:00 Verðlaunuð af forseta Íslands Frá stofnun fyrirtækisins árið 1992 hefur Bláa lónið vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fjölþætt fyrirtæki þar sem ferðaþjónusta, hótel- og veitingarekstur, rannsóknir, húðvörur og heilsutengd þjónusta fer saman. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Bláa lónið hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður, veittu verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Samhliða hlaut Alfreð Gíslason heiðursviðurkenningu fyrir mikilvægt framlag á alþjóðavettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu. Frétt af mbl.is Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Framúrskarandi árangur Bláa Lónið hlýtur verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur við uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis, verðmætasköpun og þróun starfsemi á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Í umsögn segir m.a. að fyrirtækið hafi um árabil verið eitt þekktasta íslenska vörumerkið á alþjóðavettvangi og átt mikilvægan þátt í því að byggja upp ímynd Íslands sem áfangastaðar. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1992 hafi Bláa lónið vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fjölþætt fyrirtæki þar sem ferðaþjónusta, hótel- og veitingarekstur, rannsóknir, húðvörur og heilsutengd þjónusta fari saman. Vöxtur fyrirtækisins hafi verið umtalsverður. Rekstrartekjur samstæðunnar hafi numið 156,1 milljón evra árið 2025 og hafi aukist um 36% frá fyrra ári. Til samanburðar voru tekjurnar 40 milljónir evra árið 2014 og hafi því nær fjórfaldast á rúmum áratug. Hjá Bláa lóninu starfi nú yfir 800 manns af 44 þjóðernum. Bláa Lónið hafi á undanförnum árum jafnframt þurft að takast á við óvenjulega krefjandi aðstæður vegna jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaga. Fyrirtækið hafi tekist vel á við þessar áskoranir, tryggt öryggi starfsfólks og gesta en samhliða því haldið áfram að þróa starfsemina. Fyrirtækið hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands árið 2004. Að Bláa lónið hljóti verðlaunin á ný rúmum tveimur áratugum síðar er til marks um langvarandi uppbyggingu og stöðuga þróun fyrirtækisins á alþjóðlegum markaði. Verðlaunin nú eru jafnframt viðurkenning á öflugu starfi fólksins á bak við árangurinn – starfsfólks, stjórnenda, frumkvöðla, vísindafólki og samstarfsaðila sem hafa átt þátt í að byggja upp Bláa lónið og móta þá vegferð sem hefur skapað eitt þekktasta íslenska vörumerkið á alþjóðavettvangi. Frétt af mbl.is Bláa Lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Einstakur árangur á alþjóðavettvangi Alfreð Gíslason, handknattleiksþjálfari fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í handknattleik, hlýtur heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026 fyrir einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis. Alfreð er fæddur á Akureyri árið 1959 og hóf feril sinn með KA. Hann lék síðar með KR áður en hann hélt til Þýskalands og Spánar, þar sem hann lék meðal annars með TUSEM Essen og Bidasoa. Hann var valinn íþróttamaður ársins á Íslandi árið 1989 og var jafnframt um árabil lykilmaður í íslenska landsliðinu. Eftir farsælan leikmannaferil hóf Alfreð þjálfaraferil sinn hjá KA og leiddi liðið meðal annars til Íslandsmeistaratitils árið 1997. Þaðan lá leiðin aftur til Þýskalands, þar sem hann hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð handknattleiksþjálfara. Frétt af mbl.is Alfreð hafnaði Barcelona Hann stýrði meðal annars Magdeburg til fyrsta Þýskalandsmeistaratitils félagsins og vann með liðinu þrjá Evróputitla. Síðar tók hann við Gummersbach og stýrði jafnframt íslenska landsliðinu á HM 2007 og EM 2008. Í kjölfarið tók hann við Kiel og stýrði liðinu í ellefu tímabil. Á þeim tíma varð Kiel sex sinnum Þýskalandsmeistari, vann bikarkeppnina jafn oft og Meistaradeild Evrópu tvisvar. Frá árinu 2020 hefur Alfreð stýrt þýska landsliðinu og náð þar eftirtektarverðum árangri. Liðið vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2024 og hafnaði í öðru sæti á Evrópumeistaramótinu 2026. Ferill Alfreðs ber vott um einstaka fagmennsku, leiðtogahæfni og árangur. Áhrif hans verða þó ekki aðeins metin í titlum og verðlaunapeningum. Með löngum og farsælum ferli erlendis hefur hann verið brautryðjandi fyrir íslenska þjálfara og átt þátt í að opna þeim leið að stærri verkefnum hjá félagsliðum og landsliðum víða um heim, sem segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Alfreð Gíslason fékk gríðarlega viðurkenningu Heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr Útflutningsverðlaunin eru veitt til að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í alþjóðlegri sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu. Verðlaunin eru nú veitt í 38. sinn en þau voru fyrst afhent árið 1989. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Icelandair, Íslensk erfðagreining, Truenorth og Kerecis. Embla Medical hlaut verðlaunin árið 2025. Í úthlutunarnefndinni sátu Sif Gunnarsdóttir frá embætti forseta Íslands, Magnús Þór Torfason, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Árni Sigurjónsson frá Íslandsstofu. Frétt af mbl.is Halla verðlaunar Embla Medical Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » FH - Apollon, staðan er 0:1 Baltasar Kormákur og Sunneva eiga von á barni Csíkszereda – Breiðablik, staðan er 0:0 Impossible to book an appointment despite option being available Verðlaunuð af forseta Íslands Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland dregist aftur úr í netöryggi Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Allt tiltækt slökkvilið kallað út Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ríkisstjórnin valdamesta aflið Líkamsrækt í Seðlabankanum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýjast á mbl.is » FH - Apollon, staðan er 0:1 Baltasar Kormákur og Sunneva eiga von á barni Csíkszereda – Breiðablik, staðan er 0:0 Impossible to book an appointment despite option being available Verðlaunuð af forseta Íslands Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt tiltækt slökkvilið kallað út Ríkisstjórnin valdamesta aflið Markaðurinn sýndi engin viðbrögð Kynferðisofbeldismálum snarfjölgar í Ceuta Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ríkisstjórnin valdamesta aflið Líkamsrækt í Seðlabankanum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili

Share this article