Landsframleiðsla dróst saman á öðrum ársfjórðungi en fyrri helmingur ársins eru þó enn í plús vegna þess hversu mikið landsframleiðsla jókst á fyrsta ársfjórðungi. Þetta er niðurstaða nýrra útreikninga Hagstofunnar sem voru birtir í dag. Samdrátturinn á öðrum ársfjórðungi var 1,1 prósent og fylgdi á eftir 3,8 prósenta hagvexti á fyrsta ársfjórðungi. Samanlagt er hagvöxtur á fyrri helmingi árs því 1,3 prósent. Þetta er þriðja skiptið í röð sem samdráttarársfjórðungur fylgir á eftir ársfjórðungi með hagvexti. Vöruviðskipti við útlönd ráða mestu um samdráttinn á öðrum ársfjórðungi. Aukinn halli á vöruviðskiptum miðað við sama tíma í fyrra olli því að áhrif utanríkisviðskipta á hagvöxt voru neikvæð um 2,9 prósent. Hagstofan reiknar einnig landsframleiðslu með hliðsjón af árstíðabundnum þáttum. Samkvæmt því dróst árstíðaleiðrétt landsframleiðsla saman um 3,0 prósent frá fyrsta til annars ársfjórðungs.