Landsframleiðsla á öðrum ársfjórðungi dróst saman um 1,1% að raunvirði, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Mikill samdráttur í vöruútflutningi á fjórðungnum vegur þyngst í samdrætti landsframleiðslu á milli ára, að því er kemur fram í greiningum Íslandsbanka og Landsbankans. Aukinn halli á vöruviðskiptum dró hagvöxt niður um 2,9 prósentustig á fjórðungnum. Framlag þjónustuviðskipta við útlönd var aftur á móti jákvætt sem nam 0,2 prósentustigum. „Þegar horft er fram hjá sveiflum í utanríkisviðskiptum virðist undirliggjandi þróun hagkerfisins því fremur vera jöfn og þétt kólnun en snögghemlun. Fyrri helming ársins jókst landsframleiðsla um 1,3% milli ára sem er í samræmi við hagvaxtarspá okkar fyrir árið í heild,“ segir í grein á vef Íslandsbanka. Neikvætt utanríkisviðskipta skýrist fyrst og fremst af 13,8% samdrætti í vöruútflutningi á fjórðungnum, þ.e. í magni vöruútflutnings. Í krónum talið jókst hins vegar vöruútflutningur um ríflega 2% þar sem miklar verðhækkanir á áli og sjávarafurðum. „Er það hluti af skýringunni á því hversu sterkt hefur verið í krónunni þrátt fyrir óhagstæð utanríkisviðskipti undanfarið.“ Hagfræðideild Landsbankans segist gera ráð fyrir að álframleiðsla sé þó að ná sér á strik aftur en útflutningstölur fyrir júní sýni töluverða aukningu frá fyrri mánuðum. Samdrátt í útflutningi sjávarafurða megi svo rekja til minni afla á fjórðungnum, bæði í botnfiski og uppsjávartegundum. Spá auknum hagvexti á næstu árum Greining Íslandsbanka segir að tölurnar breyti ekki verulega mati sínu á hagvexti ársins 2026. Á móti samdrættinum á öðrum fjórðungi komi að tölur fyrir fyrsta fjórðung voru endurskoðaðar til hækkunar og telst nú hagvöxtur hafa verið 3,8% á fyrstu þremur mánuðum ársins en ekki 2,7%. „Fyrri árshelmingur er því í takti við spá okkar um 1,3% hagvöxt á árinu í heild.“ Greiningardeildin segir samsetningu vaxtarins hins vegar nokkuð aðra það sem af er ári en hún hafði áður séð fyrir sér, þar sem seigara er í innlendri eftirspurn en utanríkisviðskipti á móti veikari. Það litist þó af miklum fjárfestingum gagnavera sem áttu stóran þátt í að vöruinnflutningur jókst um 1,4% ð raunvirði á ársfjórðunginum. „Sem fyrr gerum við ráð fyrir að jafnt og þétt bæti í hagvöxt á næstu tveimur árum samfara bata í útflutningi og vaxandi þrótti í eftirspurn með lægra raunvaxtastigi.“