Innlent | mbl | 31.8.2026 | 11:00 | Uppfært 11:16 Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ „Þetta eru gríðarleg vonbrigði," segir Sigríður Dögg um tíðindin í morgun. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Kristján í Kastljós og Rúnar í Spegilinn ESA leggur blessun sína yfir fjölmiðlastyrkina » Fleiri tengdar fréttir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir það hafa verið gríðarleg vonbrigði að heyra tíðindin í morgun um að Sýn ætli að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta eftir 40 ára sögu. Hún telur að þarna hafi verið gerð mistök. Frétt af mbl.is Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta „Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Það er ömurlegt að heyra að þessari sögu sjónvarpsfrétta Stöðvar 2 og Sýnar sé lokið. Þetta kemur ekkert algjörlega óvart. Þau gáfu upp boltann með þetta þegar þau ákváðu að hætta með sjónvarpsfréttir um helgar,“ segir Sigríður Dögg, innt eftir viðbrögðum við þessum tíðindum. Frétt af mbl.is Augljóst að þörf sé á utanaðkomandi aðstoð Ekki mælt í krónum Hún segir að ljóst hafi verið í hvað stefndi þegar Sýn ákvað að selja vef- og útvarpsmiðla sína til Símans og skilja sjónvarpsfréttirnar eftir. En þegar samningurinn gekk til baka hafi hún vonast eftir því að Sýn myndi nota tækifærið til að endurskoða alla fréttastofuna, hlutverk hennar í samfélaginu og gildi hennar fyrir fyrirtækið. Frétt af mbl.is Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ „Þetta er bara fólk sem skilur ekki fréttir. Ég held að þetta séu mistök. Í gegnum sjónvarpsfréttir eiga þau stefnumót við, sem þau fullyrða í sínum ársskýrslum, 50 þúsund manns á hverjum degi. Það verður ekkert mælt í krónum eða aurum virði þess stefnumóts fyrir fyrirtækið, fréttastofuna, fyrir ímynd fyrirtækisins,“ segir Sigríður Dögg og leggur þar áherslu á mikilvægi trausts almennings til fréttastofunnar fyrir fyrirtækið. Frétt af mbl.is Atli og Sunna nýir fréttastjórar Höfuðstöðvar Sýn við Suðurlandsbraut. mbl.is/Eyþór „Rannsóknir hafa sýnt að mesta traustið mælist til sjónvarpsfrétta, miklu meira en til netfrétta, af ástæðum sem eru mjög vel skilgreindar. Að þau séu tilbúin til að taka áhættuna og fórna þessu án þess að leita allra leiða til þess að efla þessa fréttastofu ennþá meira eru bara mikil vonbrigði. Ég ítreka það að mér finnst þetta mistök.“ Hún segir jafnframt ömurlegt að vita til þess að þarna sé verið að segja upp fólki og að blaðamannafélagið muni halda vel utan um félagsmenn sína. Eitt dagblað og einn sjónvarpsfréttamiðill Eftir að sjónvarpsfréttir Sýnar munu leggja upp laupana verða eingöngu sagðar sjónvarpsfréttir í Ríkissjónvarpinu. „Það er ömurlegt að við skulum vera samfélag með eitt dagblað og einn sjónvarpsfréttamiðil. Það þarf ekkert fleiri orð um það, það vita það allir. Það eru allir sammála um að fréttamiðlar séu grundvallaratriði fyrir lýðræðislega umræðu og lýðræðislega ákvarðanatöku. Við sáum það í þjóðaratkvæðagreiðslunni [um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB] að þegar Gallup spurði fólk hvaðan það fær upplýsingar var mikill meirihluti sem sagði úr fjölmiðlum. Það eru allir sammála um hversu mikilvægt er að hafa fjölbreytta, fjölradda, vandaða fréttamiðla en fólk þarf líka að vera tilbúið að borga fyrir það,“ greinir hún frá. Sigríður Dögg Auðunsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Vandaðar fréttir ekki ókeypis Formaðurinn bendir á að auglýsingamiðlar séu ekki sjálfbærir, auglýsingarnar séu farnar úr landi og að víða um heim leiti fjölmiðlar að nýjum leiðum til að reka sig. Flestir reyni við áskriftarleiðir en því miður séu Íslendingar síður tilbúnir til að borga fyrir áskrift að fréttamiðlum heldur en til dæmis fólk á hinum Norðurlöndunum. „Vandaðar fréttir eru ekki ókeypis,“ segir Sigríður Dögg. Frétt af mbl.is Vilja að styrkir til fjölmiðla hækki Fram kom í tilkynningu frá Sýn í morgun að samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefðu 51% auglýsingafjár á Íslandi runnið til alþjóðlegra tæknirisa árið 2024. Þetta hefði gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Tillögur stjórnvalda hefðu ekki haft nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta til að þær gætu breytt niðurstöðunni. Sigríður Dögg segir að vissulega þurfi RÚV að fara af auglýsingamarkaði en það sé einungis brotabrot af ástæðunni fyrir stöðu mála. Stóra vandmálið séu samfélagsmiðlarnir og tæknirisarnir. Við þeirri stöðu þurfi að bregðast sem fyrst. Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Kristján í Kastljós og Rúnar í Spegilinn ESA leggur blessun sína yfir fjölmiðlastyrkina » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn eftir skotárás í Sviss Lánaður til Danmerkur Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Albert á förum frá Fiorentina? Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Hart tekist á um bókun 35 Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Hegðaði sér nánast eins og lifandi vera Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn eftir skotárás í Sviss Lánaður til Danmerkur Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Albert á förum frá Fiorentina? Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Hart tekist á um bókun 35 Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Hegðaði sér nánast eins og lifandi vera Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda