Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.8.2026 | 20:12 „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Ungum sjálfstæðismönnum er nóg boðið eftir fréttir morgunsins. Hér má sjá Júlíus Viggó Ólafsson, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ Uppsagnir hjá RÚV Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ » Fleiri tengdar fréttir Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna, eða SUS, sendi frá sér ályktun um stöðu frjálsrar fjölmiðlunar á Íslandi í kjölfar frétta um að kvöldfréttir Sýnar verði lagðar niður. Sambandið segir „fáránlegt“ að sú staða sé komin upp í vestrænu lýðræðissamfélagi að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta. „Þetta gerist á sama tíma og við fögnum 40 ára afmæli frjáls útvarps á Íslandi. Ástandið er enn alvarlegra í ljósi þess að Ríkisútvarpið hefur ítrekað gerst sekt um hlutdrægni í fréttaflutningi sínum og almenningur þvingaður til að greiða útvarpsgjaldið,“ segir í ályktuninni. Frétt af mbl.is Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Ekki hægt að keppa við RÚV Í stefnuskrá Sambands ungra sjálfstæðismanna kemur skýrt fram að afstaða ungra sjálfstæðismanna sé sú að ríkið ætti ekki að standa í fjölmiðlarekstri né styrkjum til einkarekinna fjölmiðla. Í ályktuninni segir að þróunin undanfarin ár hafi gengið í þveröfuga átt og að staða einkarekinna fjölmiðla versni á meðan Ríkisútvarpið verði sífellt fyrirferðarmeira. „Þegar nýir vettvangar ryðja sér til rúms, hvort sem um er að ræða hlaðvörp, samfélagsmiðla eða annað stafrænt efni, fylgir RÚV á eftir með milljarða úr ríkissjóði sér til stuðnings og keppir við einkaaðila.“ Frétt af mbl.is Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ Vilja RÚV burt af auglýsingamarkaði Þá kemur fram að sú staða sem nú myndast, að einu reglulegu kvöldfréttir í sjónvarpi verði frá RÚV, sé óheilbrigð fyrir íslenskt lýðræði. Sambandið kallar eftir skjótum viðbrögðum Alþingis og segir fyrsta skrefið vera að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. „Það er óverjandi að ríkisfjölmiðill keppi við einkarekna fjölmiðla um takmarkaðar auglýsingatekjur á sama tíma og hann þiggur milljarða frá skattgreiðendum.“ Jafnframt þurfi að setja starfsemi RÚV mun strangari ramma. „Ríkisfjölmiðill á ekki að ryðja sér til rúms á hverjum nýjum markaði sem verður til. Draga þarf RÚV út úr samkeppni á hlaðvarpsmarkaði, setja skýr mörk um starfsemi þess á samfélagsmiðlum og þrengja starfsemina að skýrt skilgreindu almannaþjónustuhlutverki.“ Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ Uppsagnir hjá RÚV Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Tyrkland, staðan er 37:60 Aston Villa - Arsenal, staðan er 0:1 „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Tvöfaldur liðstyrkur til Stjörnunnar Ljóstrar upp ferðaleyndarmálum Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast að netárásum muni fjölga Uppsagnir hjá RÚV Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » Ísland - Tyrkland, staðan er 37:60 Aston Villa - Arsenal, staðan er 0:1 „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Tvöfaldur liðstyrkur til Stjörnunnar Ljóstrar upp ferðaleyndarmálum Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir unga fólkið hafa sigrað „Verðum að bera virðingu fyrir öllum sjónarmiðum“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Leituðum skjóls í helli Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“

Share this article