Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Einum smelli frá 141 milljón króna hagnaði

  • What: A financial story about a missed stock purchase
  • Impact: No direct security impact
Read Full Article →

Simon Kirketerp, fjár­festingar­rit­stjóri danska við­skipta­blaðsins Børsen , var árið 2016 einum smelli frá því að kaupa hluta­bréf í Nvidia fyrir 50 þúsund danskar krónur. Kaupin gengu hins vegar aldrei í gegn. Kirketerp hafði lagt inn kaupp­öntun í net­bankanum en þegar kom að því að stað­festa við­skiptin fékk hann efa­semdir og ákvað að bíða aðeins. Hann keypti því aldrei bréfin. Í dag væru hluta­bréfin sem hann ætlaði að kaupa um 7,5 milljóna danskra króna virði, eða sem nemur um 141 milljón króna miðað við núverandi gengi. Ávöxtunin hefði þannig numið um 15.000%. Nvidia hefur á sama tíma orðið eitt verðmætasta fyrir­tæki heims og lykil­fyrir­tæki í upp­byggingu inn­viða fyrir gervi­greind. Kirketerp segir að reynslan hafi kennt sér að ef fjár­festir hefur þegar unnið heima­vinnuna og tekið ákvörðun þurfi hann einnig að vera til­búinn að fram­kvæma hana. Eftir að hann hætti við kaupin hafi hækkandi gengi Nvidia síðan gert það sí­fellt erfiðara að stíga aftur inn, þar sem hugurinn festist við þá ávöxtun sem þegar var farin for­görðum. Hann bendir jafn­framt á að efa­semdir og mistök séu óhjákvæmi­legur hluti af fjár­festingum og að enginn fjár­festir komist í gegnum markaðinn án þess að missa af góðum tækifærum. Frá þessu segir Kirketerp í um­fjöllun Børsen í til­efni af því að miðillinn hefur hleypt af stokkunum nýjum fjár­festingar­skóla, Børsen Investor Academy. Þar fara reynslu­miklir fjár­festar og sér­fræðingar yfir bæði ákvarðanir sem hafa skilað góðri ávöxtun og þau mistök sem hafa reynst kostnaðarsöm.

Share this article