Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aldrei meira efni borist á Þjóðskjalasafn

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.3.2026 | 21:03 Aldrei meira efni borist á Þjóðskjalasafn Þórdís Anna Baldursdóttir forvörður við störf í gær. Stærstur hluti safnkostsins er á pappír en stafrænt efni er stöðugt að aukast. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Stofnunin þarf meira rými,“ segir Kristján Þorvaldsson, sviðsstjóri rekstrar hjá Þjóðskjalasafni Íslands. Um helgina auglýsti Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir eftir húsnæði til leigu fyrir skjalasafnið, það er geymslu og aðra aðstöðu sem fylgja þarf. Tiltekið er að húsnæðið þurfi að vera á höfuðborgarsvæðinu, 700-1.500 fermetrar, og tilboð frá leigusölum þurfa að berast fyrir 9. mars næstkomandi. Gögnum skilað með breytingum á stjórnsýslu „Við erum núna að leita að nýju húsnæði fyrir eina af fjargeymslum safnsins, en svo köllum við þá staði úti í bæ sem við leigjum sem geymslupláss. Sú sem við þurfum að rýma núna er í Höfðahverfinu í Reykjavík. Hana þurfum við að rýma í ágúst og því þurfum við að fá annað húsnæði í hennar stað með góðum fyrirvara til að færa safnkost á milli staða,“ segir Kristján Þorvaldsson. Hann heldur áfram: „Þjóðskjalasafn Íslands hefur skipulagt vörslu þannig að þau skjöl sem mest er sótt í eru geymd í nærgeymslu við höfuðstöðvar safnsins á Laugavegi. Þau gögn sem minna er sótt í eru yfirleitt höfð í fjargeymslunum. Þar eru einnig gögn sem eftir á að skrá og ganga frá. Breytingar í stjórnsýslunni, meðal annars í starfsemi stofnana og ráðuneyta, þegar þau eru sameinuð öðrum eða lögð niður, þýða að gögn frá þeim koma hingað á safnið. Að undanförnu höfum við tekið við gögnum frá ýmsum opinberum aðilum, þar á meðal frá gamla félagsmálaráðuneytinu, hugverkastofu og óbyggðanefnd.“ 438 afhendingar á síðasta ári Þjóðskjalasafn Íslands tók í fyrra við meira af skjölum til varðveislu en nokkru sinni áður. Alls voru skráðar 438 nýjar afhendingar; þar af voru 420 pappírsskjalasöfn og 18 rafræn skjalasöfn. Af pappírssöfnum voru 273 afhendingar frá opinberum afhendingarskyldum aðilum og 147 frá einkaaðilum. Í hillumetrum talið bættust 6.720 hillumetrar við í fyrra og stóð heildarsafnkostur í 56.060 metrum í lok síðasta árs. Dæmi um einkaskjalasöfn sem skilað hefur verið nýlega eru gögn Hjörleifs Guttormssonar náttúrufræðings og fyrrverandi ráðherra, skjöl Skáksambands Íslands og einkaskjalasafn hæstaréttarlögmannsins Gústafs Þórs Tryggvasonar (1934-2024). Af öðrum sögulegum einkasöfnum sem borist hafa eru gögn Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hann afhenti Þjóðskjalasafni Íslands fyrir áratug. Það innihélt 223 kassa og þrjá fulla skjalaskápa. Eftir flokkun og röðun er það 50 hillumetrar að lengd. Fram kom þegar Ólafur Ragnar greindi frá afhendingunni að meðal skjalanna væru dagbækur og minnisbækur sem hann hélt í forsetatíð sinni, og uppköst að yfirlýsingum vegna lagasynjana. Sem kunnugt er var sú ákvörðun tekin árið 2023 af borgarstjórn að loka Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Því safni verður endanlega lokað í nóvember næstkomandi og er viðtaka gagna þess þegar hafin hjá Þjóðskjalasafni. „Almennt eru miklar breytingar hjá hinu opinbera þar sem meiri áhersla er orðin á stafræn gögn. Skjalageymslum hjá stofnunum er lokað og þannig gefst færi á að minnka húsnæði og ná fram hagræðingu í rekstri. Skilaskyldir aðilar koma með skjölin hingað á safnið í auknum mæli,“ segir sviðsstjórinn. Rafræn gögn vistuð á mismunandi geymslumiðlum Til marks um þetta þá voru 3.261 GB af rafrænum gögnum afhent Þjóðskjalasafni til varðveislu árið 2025. Heildarsafnkostur rafrænna gagna var í lok þess árs 9.064 GB. Þetta segir Kristján í samræmi við að í opinberri starfsemi sé flest að færast í hinn stafræna heim og sú þróun sé hröð. Rafrænu gögnin eru varðveitt á nokkrum stöðum og vistuð á mismunandi geymslumiðlum. Varsla þessara gagna er samkvæmt fyrirmynd frá danska þjóðskjalasafninu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur ráðinn ráðgjafi við Háskólann á Bifröst Slökkvum á okkur í hálfa sekúndu Aldrei meira efni borist á Þjóðskjalasafn Elísabet með stórsigur á Ísrael það er ekkert flóknara en það Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Loftárásir duga ekki einar og sér Beint: Bretar senda tundurspilli Icelandair ágætlega varið fyrir hækkunum Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur ráðinn ráðgjafi við Háskólann á Bifröst Slökkvum á okkur í hálfa sekúndu Aldrei meira efni borist á Þjóðskjalasafn Elísabet með stórsigur á Ísrael það er ekkert flóknara en það Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair ágætlega varið fyrir hækkunum Loftárásir duga ekki einar og sér Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article