Sameinaða útgáfufélagið, sem gefur út Heimildina og Vísbendingu, tapaði 18,8 milljónum króna fyrir skatta í fyrra, samanborið við 7,3 milljóna króna hagnað fyrir skatta árið 2024. Tap eftir skatta nam 15,1 milljón króna. Eigið fé félagsins var neikvætt um 13,8 milljónir króna lok síðasta árs, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi. Sjá einnig Fjölmiðlar Fjölmiðlastyrkur 17% af tekjum ársins Tekjur Sameinaða útgáfufélagsins námu 462 milljónum króna og drógust saman um 15,8% eða um 86,6 milljónir króna milli ára. Félagið fékk úthlutað 77,7 milljónum króna í fjölmiðlastyrk árið 2025, eða sem samsvarar 16,8% af rekstrartekjum ársins. Til samanburðar var hlutfallið hjá Heimildinni var 12,2% árið 2024, hæst meðal allra einkarekinna fjölmiðla samkvæmt úttekt í 500 stærstu, riti Frjálsrar verslunar. Sjá einnig Horfðu til 10 milljóna fjölmiðlastyrks við kaup á Mannlífi Rekstrarkostnaður dróst saman um 11,1% og nam 478 milljónum króna. Ársverk voru 19,8 samanborið við 24,4 árið áður. Félagið skilaði 16,4 milljóna króna rekstrartapi (EBIT) í fyrra, samanborið við 10,6 milljóna króna EBIT-hagnaði árið áður. „Gripið var til afgerandi aðhaldsaðgerða í rekstri á árinu 2025 sem skila sér að fullu á árinu 2026,“ segir í skýrslu stjórnar. Skuld við eigendur komin upp í 84 milljónir Eignir félagsins voru bókfærðar á 102 milljónir króna í árslok 2025. Þar af var tekjuskattsinneign upp á 28,8 milljónir króna og eignfærður þróunarkostnaður upp á 11,8 milljónir. Eigið fé var neikvætt um 13,8 milljónir króna. Skuldir Sameinaða útgáfufélagsins námu 116 milljónum króna. Skuld við eigendur jókst um 37 milljónir milli ára og nam 84 milljónum króna í lok síðasta árs. „Skuldir félagsins eru að stærstum hluta við eigendur þess og munu þeir ekki ganga að félaginu. Stjórn og stjórnendur félagsins telja því að félagið sé rekstrarhæft og gjaldfært þrátt fyrir taprekstur á árinu 2025 og neikvætt eigið fé í árslok 2025, enda hafa óefnislegar eignir ekki verið eignfærðar nema að litlu leyti,“ segir stjórn félagsins. Fram kemur að endurgreiðsluáætlun sé í gildi vegna skulda við eigendur fjölmiðilsins. Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri félagsins og blaðamaður, og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri Heimildarinnar. © Golli / Kjartan Þorbjörnsson (Golli / Kjartan Þorbjörnsson) Hluthafar Sameinaða útgáfufélagsins eru 24 talsins. Vilhjálmur Þorsteinsson er stærsti hluthafi fjölmiðilsins með 10% hlut í gegnum Þungeind ehf. Sjö hluthafar eiga 7,6% eignarhlut hver, þar á meðal Jón Trausti Reynisson, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Góður punktur ehf., félag Reynis Traustasonar og Halldóru Jónsdóttur. Fækkuðu útgáfudögum Sameinaða útgáfufélagið, sem hét áður Útgáfufélagið Stundin fyrir yfirtöku á Kjarnanum miðlum árið 2023, fækkaði útgáfudögum Heimildarinnar um mitt síðasta ár og fór úr vikulegri útgáfu í að gefa blaðið út mánaðarlega. Samhliða var tveimur blaðamönnum sagt upp störfum. Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimildarinnar, sagði við Vísi fyrir ári síðan að það hafi haft neikvæð áhrif á lausafjárstöðu félagsins að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda hafi ekki verið endurnýjaður fyrr en seinni part árs. Það hafi gert það að verkum að félagið gat ekki fengið skammtímafjármögnun með veði í komandi styrkjum í byrjun síðasta árs.