21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk með toppslag KR og Víkings í Vesturbæ í kvöld. Víkingar hafa verið nokkuð öruggir á toppi deildarinnar og gátu með sigri stigið skrefi nær Íslandsmeistaratitlinum, KR-ingar sátu í þriðja sæti fyrir leikinn en gátu hoppað upp fyrir Fram og minnkað forskot Víkinga niður í fimm stig tækist þeim að vinna leikinn. Dagurinn byrjaði ekki vel í Vesturbænum því stuðningsfólk Víkings hafði í skjóli nætur málað varamannaskilti og stúkuna á KR-vellinum rauða. Skemmdarverkin settu talsvert svartan blett á annars góða stemmingu því fjölmennt var í stúkunni í kvöld. Liðin létu áhorfendur þó bíða eftir marki talsvert lengi því það kom ekki fyrr en í uppbótatíma. Ármann Ingi Finnbogason sýndi þá frábæra takta og þrumaði boltanum í netið fyrir Víkinga, 1-0. Allt leit út fyrir að mark Ármanns Inga myndi reynast sigurmarkið en KR-ingar höfðu ekki sagt sitt síðasta og á síðustu sekúndu leiksins tókst Arnóri Ingva Traustasyni að stanga boltann í netið og tryggja Vesturbæingum jafnteflið. KR og Fram eru nú jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti deildarinnar með 44 stig en Víkingur er með átta stigum meira í toppsætinu. Síðasta umferð fyrir deildarskiptinguna verður spiluð um næstu helgi en í kjölfarið verður leikið í efri og neðri hluta.