Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH og Breiðablik áfram í Evrópubikarnum

Read Full Article →

FH vann fyrri leikinn ytra 2-0 og mátti því við því að fá á sig mark á tíundu mínútu þegar Krystyna Freda kom gestunum yfir. Sér í lagi þar sem mörkin urðu ekki fleiri, FH vann því samanlagt 2-1 og er komið áfram í annað og síðasta stig undankeppninnar en þetta er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem það tekur þátt í Evrópukeppni. Blikar gátu farið nokkuð rólega inn í leik sinn gegn Csikszereda í Rúmeníu enda unnu þær heimaleikinn 8-1. Þær létu sér eitt mark duga í þetta skipti, það skoraði Katelyn Duong á 55. mínútu og Breiðablik, sem fór alla leið í 8-liða úrslit Evrópubikarsins í fyrra, komið örugglega áfram. Það kemur í ljós á föstudag hverjum liðin mæta í næstu umferð.

Share this article