FH-ingar fóru í heimsókn til Apollon á Kýpur en um var að ræða fyrsta Evrópuleik kvennaliðs FH. Þetta var fyrri viðureign liðanna í forkeppni Evrópubikars kvenna. Helena Maree Errington skoraði fyrsta mark FH í leiknum eftir góðan undirbúning frá Ingibjörgu Magnúsdóttur. Það var svo ekki löngu seinna að Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði annað mark beint úr aukaspyrnu og FH-ingar leiddu í hálfleik 2-0. Ekki bættu liðin mörkum við í seinni hálfleik og Hafnfirðingar fara því með tveggja marka forystu inn í seinni leikinn sem spilaður verður í Kaplakrika eftir viku. Breiðablik tók á móti rúmenska liðinu Csíkszereda á Kópavogsvelli en Blikar komust alla leið í úrslit Evrópubikarsins á síðustu leiktíð þegar keppnin var ný af nálinni. Skemmst er frá því að segja að rúmenska liðið reyndist engin fyrirstaða fyrir Blikana í kvöld. Úlfa Dís Kreye kom Blikum yfir strax á 6. mínútu og bætti öðru marki við þremur mínútum síðar. Það setti tóninn því Blikar héldu bara áfram að skora og leiddu 5-0 í hálfleik eftir mörk frá Sunnu Rún Sigurðardóttur, Líf Joostdóttur van Bemmel og Kristínu Dís Árnadóttur. Sunna Rún opnaði seinni hálfleikinn með tveimur mörkum og fullkomnaði þar með þrennu sína en á endanum urðu lokatölur 8-1 því Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði áttunda mark Blika á 54. mínútu en þær rúmensku skoruðu sárabótamark undir lokin. Það verður ekki annað sagt en að Blikar séu í vænlegri stöðu fyrir seinni leik liðanna eftir viku en sá fer fram á heimavelli Csíkszereda.