Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH til Kýpur og Breiðablik til Rúmeníu

Read Full Article →

Dregið var í fyrstu umferð forkeppni Evrópubikars kvenna í fótbolta í dag. FH og Breiðablik voru í pottinum. FH mætir Appollon Ladies sem varð kýpverskur meistari á síðasta tímabili. Breiðablik leikur gegn FK Csíkszereda frá Rúmeníu en liðið varð í öðru sæti úrvalsdeildarinnar þar í landi í vor. Úr leik Breiðabliks og FH á KópavogsvelliMummi Lú Hafnfirðingar byrja á útivelli en Blikar verða á heimavelli í fyrri leiknum. Leikið verður 26. ágúst og 2. september. Tvær umferðir eru í forkeppninni áður en Evrópubikarinn sjálfur hefst. Sænska liðið Häcken vann keppnina í ár en það var í fyrsta skipti sem hún var haldin.

Share this article