Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

KEA og Drift EA í samstarf

Read Full Article →

KEA og Drift EA hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Norðurlandi. Með samkomulaginu gerist KEA bakhjarl Driftar EA og hjálpar við að styrkja sprotaumhverfið á Eyjafjarðarsvæðinu. Í tilkynningu segir að KEA hafi lengi lagt áherslu á að fjárfesta í ýmiss konar verkefnum sem styðja við vöxt atvinnulífs á félagssvæði sínu. Þá hefur KEA einnig komið beint að fjárfestingum í nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækjum, fyrst með aðkomu að Tækifæri hf. og nú í gegnum framtakssjóðinn Landvætti sem var nýlega stofnaður. „Drift EA er lofsvert framtak og mun gegna lykilhlutverki í uppbyggingu nýrra hugmynda og fyrirtækja og sjáum við sterka samlegð í því við okkar fjárfestingaáherslur. Með þessu samstarfi erum við með öflugu fólki og fyrirtækjum að fjárfesta í skapandi umhverfi, hugmyndum og framtíð svæðisins og þetta er rökrétt skref hjá okkur í KEA í framhaldi af því að framtakssjóðnum Landvættum var nýlega ýtt úr vör með Kaldbaki,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA. Sjá einnig Landsbankinn og Drift EA í samstarf Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Drift EA, segir að það sé mikill akkur að fá KEA í lið með Drift EA. „Með samstarfinu sameinum við krafta fjárfestis sem hefur skýra sýn og sterka samfélagslega ábyrgð við lifandi frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi. Samstarfið mun skapa raunveruleg tækifæri fyrir hugmyndir að vaxa og dafna hér á svæðinu og skapar skilyrði fyrir fjölbreytt og öflugra atvinnulíf,“ segir Sesselja.

Share this article