Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Næst stærsta yfirtaka í sögu Nvidia

Read Full Article →

Tæknirisinn Nvidia hefur náð samkomulagi um að kaupa bandaríska fyrirtækið Hugging Face fyrir 13 milljarða dala. Þetta er næst stærsta yfirtaka í sögu Nvidia, aðeins á eftir 20 milljarða dala kaupum félagsins á rekstrareiningum örgjörvaframleiðandans Groq í september sl. Hugging Face hýsir gervigreindarlíkön og mikið magn gagna fyrir þróunaraðila um allan heim. Félagið hafnaði í fyrra tilboði um risafjárfestingu frá Nvidia, sem fól í sér verðmat upp á 7 milljarða dala, til að halda stöðu sinni sem sjálfstæðum hýingaraðila fyrir milljónir gervigreindarlíkana og gagnasafna. ‏ Nvidia sagði að markmið kaupanna væri að flýta útbreiðslu opinna gervigreindarlíkana. Ólíkt lokuðum og sérhæfðum líkönum frá gervigreindarfyrirtækjum á borð við OpenAI og Anthropic er hönnun opinna líkana opinber og notendur geta hlaðið þeim niður, gert breytingar á þeim og keyrt þau á eigin búnaði. Nvidia er verðmætasta fyrirtæki heims með markaðsvirði upp á 5,4 þúsund milljarða dala.

Share this article