Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sú vinsælasta og sú hæsta verða með á HM

Read Full Article →

Á morgun hefst HM kvenna í körfubolta og sýnt verður frá mótinu á stöðvum RÚV. Körfuboltasérfræðingurinn Benedikt Guðmundsson verður á meðal lýsenda og hann segir að fjölmargir spennandi leikmenn séu með: „Það verður gaman fyrir fólk að fylgjast með til dæmis Caitlin Clark. Eigum við ekki að segja að hún sé svona skærasta stjarnan í kvennakörfunni og er heldur betur búin að auka áhugann á kvennakörfubolta.“ Heimsmeistaramót kvenna í körfubolta hefst á morgun og verður á dagskrá RÚV næstu daga. Benedikt Guðmundsson, körfuboltasérfræðingur, segir að á mótinu verði ótal margir spennandi leikmenn til að fylgjast með. „Það hafa leikmenn verið að detta út hjá Bandaríkjunum á síðustu stundu en þær eru með geggjað lið. Önnur þar, Paige Bueckers, sem að er frábær leikmaður. Nýleg stjarna í kvennakörfunni.“ „Svo erum við með, eigum við ekki að segja hávaxinn leikmann, í Zhang Ziyu sem er 19 ára og er 2,20 m á hæð. Ég bíð spenntur eftir að sjá hana. Hún er að koma inn núna í A-landslið kvenna hjá Kína.“ Frakkar hársbreidd frá Ólympíugullinu á heimavelli Bandaríkin hafa sópað að sér verðlaunum og liðið fer sigurstranglegt inn í mótið. En hvaða lið telur Benedikt að geti strítt því bandaríska? „Bandaríkin eru alltaf með langlíklegasta liðið og sterkasta liðið og best mannaða. Þær eru búnar að vinna HM fjórum sinnum í röð en svo er það Frakkland. Ég hef mikla trú á franska liðinu. Þær voru mjög nálægt því að vinna Bandaríkin á Ólympíuleikunum í svaka úrslitaleik.“ „Svo er það belgíska liðið, þetta eru þrjú sterkustu liðin svona fyrirfram. Svo eru góð lið eins og Þýskaland, Ástralía og fleiri en ég myndi segja að franska liðið og það belgíska geti ógnað því bandaríska eitthvað.“ Áskorun á áhorfendur heima „Ég skora á fólk að kynna sér leikmenn og liðin fyrir mótið og vera tilbúið þegar það sest fyrir framan skjáinn.“ RÚV sýnir valda leiki í riðlakeppni mótsins sem verður á mánudag og svo alla leikina í útsláttarkeppninni. Alla dagskrána má finna í viðburðardagatalinu .

Share this article