Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Svona verður HM í körfubolta

Read Full Article →

Heimsmeistaramót kvenna í körfubolta hefst í dag og stendur yfir til 13. september. Sýnt er frá mótinu á RÚV. Bandaríkjakonur eru ríkjandi heimsmeistarar og hafa unnið titilinn oftast allra, eða 11 sinnum. Mótið er haldið í 20. sinn. Bandaríkin unnu Kína í úrslitum 2022. Athygli vekur að liðin eru í sama riðli í ár. Riðlarnir fjórir Riðill A Japan Spánn Þýskaland Malí Riðill B Ungverjaland Suður-Kórea Nígería Frakkland Riðill C Belgía Ástralía Púertó Ríkó Tyrkland Riðill D Bandaríkin Tékkland Ítalía Kína Clark verður með Caitlin Clark verður með bandaríska liðinu á sínu fyrsta stórmóti en hún var ekki valin á Ólympíuleikana 2022. Hún lék fyrst með liðinu í undankeppninni í mars. Liðið verður þó án A'ja Wilson og Kelsey Plum sem eru báðar frá vegna meiðsla. Wilson var valin verðmætasti leikmaðurinn á HM 2022. Ungstirnið Angel Reese er einnig í bandaríska hópnum. Hvaða leikir verða sýndir? Valdir leikir í riðlakeppni eru sýndir. Allir umspilsleikir og leikir í 8-liða úrslitum og undanúrslitum verða sýndir auk úrslitaleikja. Bronsleikurinn og úrslitaleikurinn eru 13. september. Leikjadagskrá: Bandaríkin - Kína: 04. september - 12:15 - RÚV Spánn - Þýskaland: 04. september - 15:45 - RÚV Þýskaland - Japan : 05. september - 16:00 - RÚV2 Ítalía - Bandaríkin: 06. september - 18:45 - RÚV2 Bandaríkin - Tékkland: 07. september - 18:45 - RÚV2 Umspil : 08. september - 17:45 - RÚV2 Umspil : 08. september - 20:45 - RÚV2 Umspil : 09. september - 17:45 - RÚV2 Umspil : 09. september - 20:45 - RÚV2 8-liða úrslit: 10. september - 09:30 - RÚV 8-liða úrslit: 10. september - 12:30 - RÚV 8-liða úrslit: 10. september - 15:45 - RÚV 8 - liða úrslit: 10. september - 18:45 - RÚV2 Undanúrslit : 12. september - 16:30 - RÚV2 Undanúrslit : 12. september - 20:00 - RÚV2 Bronsleikur : 13. september - 14:30 - RÚV2 Úrslitaleikur : 13. september - 18:00 - RÚV

Share this article