Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Caitlin Clark í ham þegar Bandaríkin unnu stórt

Read Full Article →

Bandaríkin spiluðu fyrsta leik sinn á HM kvenna í körfubolta gegn Kína í dag. Kínverska liðið var ekki mikil fyrirstaða en Bandaríkin unnu leikinn nokkuð örugglega 94-61. Bandaríska liðið tók forystu strax í upphafi og lét hana aldrei af hendi þó að kínverska liðið hafi aðeins saxað á í upphafi annars leikhluta. Hálfleikstölur voru 49-29 og munurinn jókst svo bara í seinni hálfleiknum. Að lokum unnu þær bandarísku 33 stiga sigur 94-61 og byrja titilvörn sína af krafti. Liðin eru með Tékklandi og Ítalíu í riðli en toppliðið kemst beint í 8-liða úrslit á meðan liðin í öðru og þriðja sæti þurfa að fara í umspil. Stigaskorið dreifðist nokkuð jafnt hjá bandaríska liðinu en þær Caitlin Clark, Rhyne Howard og Paige Bueckers skoruðu allar 14 stig. Þar ofan á átti Clark 11 stoðsendingar sem er það mesta sem bandarískur leikmaður hefur gefið í fyrsta leik sínum á HM. Hún er auk þess aðeins ein af átta leikmönnum til að gefa meira en 10 stoðsendingar í leik á HM kvenna.

Share this article