Á lista yfir þá 150 Íslendinga sem voru með hæstu fjármagnstekjurnar í fyrra má finna einstaklinga úr ýmsum áttum. Þar á meðal eru nokkrir vel þekktir forstjórar og framkvæmdastjórar. Framkvæmdastjóri Kjarnavara er efstur með tæplega 1,5 milljarða, sem má rekja til þess að hann seldi hlut í fyrirtækinu í fyrra. Framkvæmdastjóri og eigandi lyfja- og greiningartækjaheildsölunnar Lyra, hefur áður lent á listanum en í fyrra var hann með 1,2 milljarða í fjármagnstekjur. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, er sömuleiðis einn af þeim sem rata á listann ár eftir ár en í fyrra námu fjármagnstekjur hans 768 milljónum króna. Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var þá með 637 milljónir. Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri og meðeigandi Fagkaupa og Bóksal, var með 607 milljónir og Magnús Einarsson, framkvæmdastjóri og eigandi Efniviðar, með 605 milljónir. Þorvaldur H. Gissurarson, forstjóri og eigandi ÞG Verks, var þá með 552 milljónir, Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, var með 383 milljónir, Ásberg Jónsson, forstjóri og meðeigandi Travel Connect, var með 378 milljónir, Björn Kristmann Leifsson, forstjóri og meðeigandi World Class, var með 371 milljón, og Benedikt Eyjólfsson, forstjóri og meðeigandi Bílabúðar Benna, var með 300 milljónir. Eigendur stórra fyrirtækja eru sömuleiðis á listanum, meðal annars Ólafur Björnsson, eigandi heildsölunnar Innnes, með 587 milljónir, Helgi Vilhjálmsson, eigandi Góu og KFC, með 448 milljónir og Ágúst Þór Eiríksson, stjórnarformaður og eigandi Icewear, með 329 milljónir. Einnig eru ýmsir fjárfestar, þar á meðal Davíð Helgason, stofnandi Unity, með 1,3 milljarða, Haraldur Davíðsson, sem átti meðal annars hlut í Kerecis, með 983 milljónir og Ingibjörg Jónsdóttir, meðeigandi Silfurbergs, með 684 milljónir. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.