Innlent | Morgunblaðið | 3.9.2026 | 23:22 Framkvæmir það sem henni dettur í hug Jón og Erla standa í ströngu flesta daga við að þjónusta ferðamenn og fræða þá um fortíðina. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson Skúli Björn Gunnarsson Vopnafjörður Setja bókamerki Þegar ekið er inn í Hofsárdal, sunnan við þéttbýlið á Vopnafirði, blasir við hús neðan við veginn sem á hefur verið málað með stórum stöfum orðið Glaðheimar. Ofan vegar er býlið Ásbrandsstaðir. Þar hefur verið rekin ferðaþjónusta frá árinu 2012 en þá ákváðu hjónin Erla Alfreðsdóttir og Haraldur Jónsson að byrja að þjónusta ferðamenn í stað þess að byggja nýtt fjós. Þau hófu reksturinn með eitt gámahús sem þau sáu auglýst í Bændablaðinu og sóttu suður á Selfoss. Tjaldsvæði með þjónustuhúsi var opnað sumarið 2016 og síðan hefur það stækkað og fleiri rúmstæði bæst við í húsum. Á tjaldsvæðinu er allt til alls: eldunar- og þvottaaðstaða, rafmagn og leiktæki fyrir börnin. „Þetta er alltaf að vaxa. Ég held að sumarið í sumar sé það jafnasta hjá okkur fram að þessu. Yfir háannatímann voru sjaldan færri en 20 bílar hér og töluvert um stórfjölskyldur,“ segir Erla. Það eru bæði innlendir og erlendir ferðamenn sem nýta sér þjónustuna á Ásbrandsstöðum og stundum koma stærri hópar, t.d. Íslendingar sem ferðast saman á húsbílum. Sögu ferðaþjónustu á Ásbrandsstöðum má rekja lengra aftur. Árið 1961 var flutt inn í nýtt og stórt hús á bænum. Á þeim tíma lögðu hljómsveitir og leikhópar land undir fót og að sögn Erlu samdi sveitarfélagið við móðursystur hennar um að hýsa slíka hópa gegn greiðslu. Einnig dvöldu margir veiðimenn í Hofsá á Ásbrandsstöðum og nefnir Erla sérstaklega Lúðvík Jósepsson, þingmann og ráðherra, sem gat gengið að vísu herbergi þegar hann kom til veiða. Erla Alfreðsdóttir tekur þvottinn inn og undirbýr komu næstu gesta. Í nægu er að snúast á Glaðheimum. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson Þegar fréttaritara bar að garði voru Erla og Jón sonur hennar í óðaönn að þvo þvott, þrífa og gera klárt fyrir næstu næturgesti. Í mörg horn er að líta því að Jón rekur auk þess sjoppuna úti á Vopnafirði með kærustu sinni. En gestum á Ásbrandsstöðum býðst að njóta upplifunar af ýmsu tagi. Erla segir að það hafi verið árið 2020 sem byrjað var að breyta gamalli vélageymslu á bænum í salarkynni og safn. Hún segist hafa ákveðið að endurvekja á húsinu heitið Glaðheimar sem notað var um samkomurými í gamla bænum á Torfastöðum í Vesturárdal. „Húsið ber þetta nafn með rentu því að það er sungið og dansað þarna þegar svo ber undir. Ég spila soldið á harmonikku og á meðan dóttir mín var heima við þá söng hún með mér. Stundum spiluðum við heilu dagspartana fyrir erlenda gesti. Það koma líka hópar sem grilla og fá okkur til að skemmta sér.“ Glaðheimar geyma einnig vísi að safni um landpósta. Langafi Erlu, Guðmundur Kristjánsson, sem keypti Ásbrandsstaði árið 1900, var landpóstur. Hann tók að sér póstferðir frá Vopnafirði til Skinnastaðar í Öxarfirði árið 1903 og ári síðar var póstleiðin lengd til Víkingavatns í Kelduhverfi. Sonur hans Runólfur byrjaði að fylgja föður sínum árið 1916 og tók við hlutverkinu sjö árum síðar. Farnar voru fimmtán ferðir á ári, tíu að vetri og fimm að sumri. Að jafnaði fóru tíu dagar í vetrarferðirnar og rúm vika í sumarferðirnar. Síðar bættust við póstleiðir í Fagradal og yfir í Jökulsárhlíð. Í Glaðheimum eru myndir og textar um póstferðirnar ásamt gömlum munum er tengjast þeim. Tréskíði, sleðar og póstkoffort auk póstpoka frá ýmsum tímum. Djásn safnsins eru póstlúður og bréfataska með koparslegnum póstmerki og krúnu sem Guðmundur notaði á sinni tíð. Húsið lætur lítið yfir sér neðan við bæinn á Ásbrandsstöðum en hýsir m.a. merka sögu landpóstanna. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson Sýndarveruleiki um póstleiðir Til þess að auðvelda gestum að átta sig á landháttum og löngum ferðalögum póstanna réðust Erla og sonur hennar Jón í að fá fyrirtækið Envalys til að vinna sýndarveruleikasýningu sem tekin var í notkun síðastliðið vor. „Við sáum viðtal við þá Hannes Högna og Pál Líndal í Landanum um þrívíddarlíkön sem þeir voru að vinna og þá kviknaði þessi hugmynd um að gera sýndarveruleika af gömlu póstleiðinni,“ segir Jón Haraldsson um leið og hann kveikir á risaskjá og tölvu og handleikur Xbox-fjarstýringu. Þeir hjá Envalys bjuggu til landfræðilegt þrívíddarlíkan af öllu norðausturhorninu og einnig þrívíð líkön af gömlum byggingum á viðkomustöðum landpóstanna byggð á ljósmyndum. Öllu þessu var steypt saman með ljósmyndum og textum og sett upp í leikjaumhverfi þannig að hægt er að keyra sýninguna í bæði gönguham á jörðu niðri eða fljúga yfir stærra svæði. Jón stýrir för á skjánum og rekur ferðir forfeðra sinna og svaðilfarir fyrir gestum en í framtíðinni munu menn einnig geta sett á sig sýndarveruleikagleraugu og stýrt sér sjálfir. Hægt er að skoða sýndarveruleika um gamlar póstleiðir á NA-horninu sem fyrirtækið Envalys vann fyrir þau. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson Þessi nýjung hefur fengið góðar viðtökur í sumar enda óvanalegt að rekast á svo nýstárlega miðlun í litlu einkasafni eins og á Ásbrandsstöðum. Þau mæðgin segjast ætla að halda áfram að bæta við safnið. Erla hefur á orði að sig langi til að sýna muni sem tengjast fleirum í fjölskyldunni, eins og Halldóri afabróður hennar sem var járnsmiður og smíðaði mikið af sínum verkfærum sjálfur. En hvernig lítur framtíðin í ferðaþjónustunni á norðausturhorninu út að mati Erlu? „Ég er frekar bjartsýn á að ferðaþjónusta í Vopnafirði muni glæðast. Það eru ótal tækifæri. Fallegar gönguleiðir sem mætti merkja betur og koma á framfæri. Síðan eru byrjuð að koma skemmtiferðaskip og hægt að bjóða upp á ferðir út frá þeim. Ég sé líka fyrir mér farþegabáta sem sigla með ströndinni. Að sjá landið af sjó er öðruvísi upplifun. Kannski kaupi ég bát,“ segir Erla. „Það er eins og kona hér í sveitinni sagði við mig einhvern tíma: Ef þér dettur eitthvað í hug ertu vön að framkvæma það!“ Með þeim orðum kveður Erla fréttaritara og er allt eins víst að næst þegar leiðin liggur í Vopnafjörð muni hún bjóða í bátsferð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Framkvæmir það sem henni dettur í hug Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Ákærð fyrir mannskæða skotárás Áfall fyrir tvo leikmenn Liverpool Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kemur vel til greina að fjarlægja klett Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Írskir miðlar fjalla um banaslysið Sterklega grunaður um íkveikju á Laugavegi Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Framkvæmir það sem henni dettur í hug Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Ákærð fyrir mannskæða skotárás Áfall fyrir tvo leikmenn Liverpool Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefjast að skipið fái að fara leiðar sinnar Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Þeir stóru moka út miðum á jólasýningar Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríki