Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Norræn goðafræði nýtur vinsælda

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.9.2026 | 10:00 Norræn goðafræði nýtur vinsælda Hof og helgidómur. Trén spegla sig í pollinum þar sem helgasti hluti hins nýja höfuðhofs verður staðsettur. mbl.is/Karítas Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Framkvæmdir við hof Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíð hafa gengið vel, þótt verkið hafi legið niðri um nokkurra ára skeið vegna fjárskorts. Allri steypuvinnu vegna 1. áfanga er nú lokið og bráðabirgðaaðstaða hefur verið tekin í notkun á lóðinni. Hluti hússins hefur verið tekinn í notkun þótt verkinu í heild sé ekki lokið. Magnús Jensson arkitekt hússins segir að félagsrými hafi verið tekið í notkun, ásamt helstu stoðrýmum. „Félagsrýmið er í rými sem verður opnanlegt yfir í helgidóminn, sem hefur verið tekinn í notkun sem útirými. Nú skilur bráðabirgðaveggur rýmin að.“ Spurður hvort komið sé nafn á húsið segir hann að húsið hafi ekki enn hlotið nafn og muni nafngiftin fylgja vígslu þess. Heimssöguleg bygging Þú talar um að húsið sé heimssöguleg bygging. Hvernig útskýrir þú það? „Já. Þótt áratugir séu liðnir frá því að menningarfræðin lögðu af hugmyndina um algilt menningarlæsi, og fóru þess í stað að horfa til staðbundinna menningarheima um allan heim, er enn langt í land að losa okkur undan valdboðinni „réttmenningu“. Norræn goðafræði nýtur mikilla vinsælda á alþjóðavísu, en þeirri hylli fylgja oft neikvæðar hliðar, til dæmis að vanþróaður mannskilningur fortíðar er upphafinn.“ Magnús segir að ásatrúarfélög séu starfandi á öllum Norðurlöndunum og víða um heim í dag, en ekkert þeirra hafi enn náð að reisa sér hof. „Það tel ég heimssögulegt í sjálfu sér, verði af þessu verður hér um að ræða fyrsta höfuðhofið sem reist er í Norður-Evrópu frá því að hofið í Uppsölum var brennt, árið 1081. Til viðbótar finnst mér heimssögulegt að staðbundin menning sé loks farin að spila á sama borði og sú menning sem áður réð ríkjum með valdi og á fjöldann allan af byggingum. Í þriðja lagi á frjálslyndi Ásatrúarfélags Íslands erindi við umheiminn.“ Í fararbroddi á heimsvísu Á Íslandi er hreyfing heiðinna manna næststærsta trúarhreyfingin á eftir þeirri kristnu og segir Magnús hún sé sú hreyfing sem vex hraðast. Þau séu í fararbroddi á heimsvísu. Hvað greinir ásatrú frá kristinni trú? Innan Ásatrúarfélagsins hefur reyndar ekki verið full samstaða um að orðið „trú“ eigi yfirhöfuð við um heiðinn sið. Heiðni hefur enga trúarjátningu og ekkert trúboð. Talsvert starf hefur verið unnið til að losa heiðnina undan kristnum skilningi á því hvað trúarbrögð eru. Fólk á það til að skipta um nöfn og vilja fá eitthvað annað í staðinn, eins og öll trúarbrögð væru mótuð í sama skapalóni. Fornmenn voru þar að auki mjög vísindalega sinnaðir.“ Hof Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíð verður fyrsta höfuðhofið sem rís í Norður-Evrópu frá árinu 1081. Húsið mun fá nafn við vígslu þess. Tölvumynd/Magnús Jensson Hann segir að í Konungsskuggsjá komi skýrt fram að jörðin sé hnöttótt. Sumarauki Þorsteins surts var nákvæmara dagatal en hið heimsfræga dagatal Maya, og Stjörnu-Oddi, sem vann sjálfstæðar athuganir á sólargangi, er talinn meðal stærstu vísindamanna 12. aldar. „Á sama tíma unnu fornmenn Norðurlanda mikið með drauma og draumaráðningar og báru virðingu fyrir því sem einungis er hægt að kynnast á persónulegan hátt. Í þeim skilningi var hér rík trúarmenning. Helgisiðir voru studdir bestu list í orðum, útskurði, byggingum og klæðagerð. Ekkert var til sparað við að skapa helga stund, þar sem hlutirnir eru skoðaðir í stærra samhengi, stund heildrænnar hugsunar.“ Byrja að helga stund og stað Spurður hvernig athafnir eins og skírn, ferming, gifting og útfarir fari fram segir Magnús að helgiathafnir tengdar tímamótum af þessu tagi sé allar til hjá þeim. „Þær eru, líkt og blót almennt, ekki langar. Byrjað er á að helga stund og stað, því næst er barni gefið nafn og að lokum er fagnað, oft í heimahúsum. Í stað fermingar er siðfesta, fræðsla fyrir ungmenni sem lýkur með helgiathöfn, en siðfesta er ekki bundin við ákveðinn aldur eins og ferming er. Hjónavígslur hafa iðulega verið haldnar úti í náttúrunni, en nú hefur myndast langur biðlisti eftir hjónavígslum í hofinu sjálfu. Útfarir eru þær athafnir sem hafa lengsta hefð og fara að hluta fram í grafreitum, meðal annars grafreit Ásatrúarfélagsins í Gufunesi. Heiðnar helgiathafnir samtímans eru unnar af miklum metnaði, byggðar á bestu þekkingu úr heimildum og fornminjum.“ Getur fólk verið bæði í þjóðkirkjunni og Ásatrúarfélaginu? „Samkvæmt íslenskum lögum getur hver einstaklingur aðeins verið skráður í eitt trúfélag í senn. Ásatrúarfélagið hefur þó átt gott samstarf við önnur trúfélög og staðið fyrir sameiginlegum helgiathöfnum með þeim.“ Jólin eru heiðin hátíð Magnús segir að erfitt sé að benda á einn hátíðardag umfram annan. „Heiðinn siður hefur fjórar meginhátíðir yfir árið, sólstöðuhátíðirnar tvær, jól og Alþingi/þingblót og jafndægrahátíðirnar, sumardaginn fyrsta og veturnætur, þótt þær síðarnefndu falli reyndar ekki nákvæmlega á jafndægur.“ Haldið þið jól að kristnum sið? „Jól eru heiðin hátíð, ekki kristin. „Jólnir“ eru raunar eitt af heitum Óðins. Sjálf jólahátíðin er haldin 21. desember. Fyrir sjálfan mig og það er raunar mjög algengt, held ég einnig fjölskylduhátíð þann 24. desember, enda hefur sá dagur aldrei haft kristið inntak á mínu heimili. Ég man að amma vildi alltaf hafa kveikt á því sem kallað var „útvarpsmessan“, en það var nú á síðustu, eða þarsíðustu öld.“ Opna lóðina fyrir almenningi Magnús tekur fram að þrátt fyrir að félagið hafi ekki sparað í þjónustu sinni við félagsfólk, hafa myndast sjóðir að nýju og nú er unnið að næstu framkvæmdaþáttum hofsins. Einnig stendur til að ganga frá lóðinni og opna hana almenningi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Af hverju fékk markið að standa? Segir íslenska banka standa halloka Lokun leiðslu högg fyrir olíuverð Þrír látnir eftir enn eina árásina á vöruhús Important business ties between the two countries on the horizon Umræðan Kosningapólitík Hvert var planið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Vill svipta leikstjóra ísraelskum ríkisborgararétti Of tímafrekt að nota alvöru kú Ísland þekktast fyrir saltfiskinn Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Hópslagsmál í bílakjallara Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Fagna endurskoðun vaxtarmarka Hitinn gæti náð 15 stigum „Fyrsta ferðin í svona glæsikerru“ Aflmikill Otter skilar sínu Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik Nýjast á mbl.is » Af hverju fékk markið að standa? Segir íslenska banka standa halloka Lokun leiðslu högg fyrir olíuverð Þrír látnir eftir enn eina árásina á vöruhús Important business ties between the two countries on the horizon Umræðan Kosningapólitík Hvert var planið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinstri stjórnarandstaðan með forystu Munar aðeins einum þingmanni Hundruð flýja elda á vinsælum ferðamannastað Mikilvæg viðskiptatengsl þjóðanna í sjónmáli Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Hópslagsmál í bílakjallara Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Fagna endurskoðun vaxtarmarka Hitinn gæti náð 15 stigum „Fyrsta ferðin í svona glæsikerru“ Aflmikill Otter skilar sínu Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Rannsakað sem alvarlegt atvik

Share this article