Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Upp úr sauð þegar Bandaríkjakonur sluppu með skrekkinn

Read Full Article →

Ítalía og Bandaríkin mættust í annarri umferð riðlakeppni HM kvenna í körfubolta í kvöld og fyrirfram var helst rætt um hversu stóran sigur stjörnu prýtt lið Bandaríkjanna myndi vinna. Bandaríkjakonur virtust ætla að gera út um leikinn snemma, leiddu 19–8 eftir fyrsta leikhluta, en Ítalir unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og komust yfir, 50–49, þegar þrjár mínútur og 21 sekúnda var eftir. Bandaríkin náðu forystunni aftur en Ítalía fékk tækifæri til að jafna í lokasókninni. Cecilia Zandalasini fékk þá högg í andlitið en ekkert var dæmt og Ítalir voru æfir. Zandalasini náði engu að síður þriggja stiga skoti til að jafna leikinn en hitti aðeins spjaldið og Bandaríkin sluppu með 55–52 sigur. Þetta var jafnasti HM-leikur Bandaríkjanna síðan liðið tapaði í undanúrslitum HM 2006. Bandaríkin hafa nú unnið 32 HM-leiki í röð og höfðu ekki unnið leik með minna en átta stiga mun á þeirri sigurgöngu fyrr en í kvöld. „Bandaríkin sleppa hérna með skrekkinn,“ sagði Benedikt Guðmundsson sem lýsti leiknum á RÚV 2. Bandaríkin sluppu heldur betur með skrekkinn gegn Ítalíu á HM kvenna í körfubolta í kvöld. Heimsmeistararnir unnu 55–52 eftir mikla dramatík á lokasekúndunum. Ein óvæntustu úrslit mótsins urðu í gær þegar Malí vann stórveldið Spán. Í dag vann Ástralía Tyrkland 87–71 og Belgía vann Púertó Ríkó 76–64. Kína vann hádramatískan 74–70 sigur á Tékklandi eftir framlengingu. Tékkar leiddu 64–59 þegar aðeins 27 sekúndur voru eftir en Kína jafnaði þegar þrjár sekúndur voru eftir og knúði fram framlengingu. Ein óvæntustu úrslit mótsins til þessa urðu í gær þegar Malí vann stórveldið Spán 82–73. Spánverjar eru í sjötta sæti heimslistans en Malí í átjánda. Ungverjaland vann Nígeríu 71–67 og fagnaði þar með sínum fyrsta HM-sigri í 28 ár. Þýskaland vann Japan 74–58 og það var sömuleiðis fyrsti HM-sigur Þjóðverja síðan 1998. Frakkland vann Suður-Kóreu örugglega, 95–69. RÚV sýnir beint frá HM kvenna í körfubolta og verður einn leikur sýndur beint annað kvöld, mánudag, viðureign Bandaríkjanna og Tékklands á RÚV 2 kl. 18:45.

Share this article